Frétt
Svona eru ORA grænar baunir gerðar
Jólaundirbúningurinn byrjar snemma í verksmiðju ORA því þar eru framleiddar þrjátíu þúsund dósir á dag fyrir hátíðirnar, þegar best lætur. Það er margur siðurinn sem tilheyrir jólunum og jólaundirbúningi og margt af því tengist mat. Meðal þess sem fólk neytir í meiri mæli yfir jól og áramót eru niðursoðnar grænar baunir.
Um mánaðamótin september, október byrjar starfsfólk verksmiðju ORA að framleiða fyrir jólin, þar á meðal grænar baunir. Yfir jólahátíðina eru seldar tæplega sjö hundruð þúsund dósir af baununum.
„Við reynum að taka langar lotur í grænum baunum og á góðum degi þá tökum við 30.000 dósir þannig að það fara nokkrir dagar í þetta,“
segir Sigurður Ingi Halldórsson, framleiðslustjóri ORA.
Fátt er íslenskara í hugum margra en Ora grænar baunir um jólin. Þær eiga sér þó alþjóðlegan bakgrunn því að baunirnar koma frá Bandaríkjunum, þær eru settar í dós frá Danmörku. Henni er svo lokað með loki frá Mexíkó.
„Við fáum baunir frá Bandaríkjunum, frá Seattle. Við byrjum á því að leggja þær í bleyti. Það flýtir fyrir upptöku vatns og þyngir þær örlítið,“
segir Sigurður Ingi í samtali við RÚV sem fjallar nánar um málið hér og birtir myndband frá framleiðslunni.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Markaðurinn6 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn5 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Keppni5 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Frétt23 klukkustundir síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn4 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni5 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september




