Frétt
Viktor Örn eldaði dýrindis rétti úr íslensku hráefni á jólamarkaði í Strassborg
Mikill áhugi er á Íslandi í Strassborg í Frakklandi þessa dagana þar sem Ísland er heiðursgestur á einum elsta og stærsta jólamarkaði í heimi. Þetta er í 447. skipti sem markaðurinn er haldinn og er búist við að rúmlega tvær milljónir manna heimsæki markaðinn í desember.
Markaðurinn opnaði 24. nóvember s.l. og verður opinn fram að jólum. Litla rauða Eldhúsið sem ferðast hefur víða, var flutt frá Barcelona á Place Gutenberg í miðjum gamla bænum í Strassborg. Ellefu íslensk fyrirtæki taka þátt í markaðnum og selja þar íslenskar vörur.
Athyglin á Ísland var nýtt til að kynna sjávarfang og fleiri matvæli frá Íslandi og var blaðamönnum boðið til málsverðar þar sem matreiðslumeistarinn Viktor Örn Andrésson eldaði dýrindis rétti úr íslensku hráefni.
Einnig gátu hlustendur útvarpsstöðvarinnar Top Music Radio tekið þátt í leik í aðdraganda opnunar markaðarins og fengu fimm vinningshafar boð í hádegisverð í Eldhúsinu. Gestir geta tekið með sér uppskriftabækling með þorskréttum en Frakkland er stærsti markaðurinn fyrir þorsk frá Íslandi og var sérstök áhersla lögð á kynningu á þorskinum fyrir fjölmiðlafólkinu og almenningi.
Myndir: responsiblefisheries.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn2 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn1 dagur síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt7 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt6 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni2 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Frétt7 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins











