Smári Valtýr Sæbjörnsson
Svissneskt fyrirtæki kaupir hlut í Omnom

Omnom Chocolate var stofnað árið 2013 af Óskari Þórðarsyni og Kjartani Gíslasyni. Hjá Omnom starfa 13 manns og selur fyrirtækið súkkulaðistykki sín í yfir 500 verslunum í 17 löndum.
Fjárfestingafélagið Quadia, sem hefur aðsetur í Sviss, hefur keypt hlut í Omnom Chocolate og verður þar með annar stærsti hluthafi félagsins. Omnom Chocolate er eina súkkulaðifyrirtækið á Íslandi sem framleiðir súkkulaði úr baun í bita.
Verksmiðja Omnom og verslun, sem var opnuð í júlí 2016, eru staðsett á hinu blómstrandi Grandasvæði, segir í fréttatilkynningu.
Aðrir eigendur Omnom Chocolate eru Óskar Þórðarson framkvæmdastjóri og Kjartan Gíslason matreiðslumaður og súkkulaðigerðarmeistari, en þeir eru jafnframt stofnendur fyrirtækisins.
„Við erum afar ánægðir með aðkomu þess svissneska félags að Omnom. Með aðkomu Quadia getum við styrkt innviði fyrirtækisins og við munum eiga gott bakland í þeim fyrir áskoranir framtíðarinnar. Omnom er í miklum vexti og með innkomu Quadia fáum við aðgang að gríðarlegri reynslu fjárfestingarhóps, sem sérhæfir sig í að fjárfesta og vinna með fyrirtækjum sem vilja hafa samfélagsleg áhrif”
, segir Óskar.
Quadia er staðsett í Genf í Sviss og er þar að auki með skrifstofur í London. Það sérhæfir sig í fjárfestingum sem hafa umhverfisvernd, sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi en Quadia er frumkvöðull þegar kemur að fjárfestingum í umhverfisvænni orku og sjálfbærri matvælaframreiðslu. Nú þegar hefur Quadia fjárfest fyrir 150 milljónir dollara í 25 fyrirtækjum víðsvegar um heiminn.
Í fréttatilkynningu segir Severine Blacik, fjárfestingastjóri hjá Quadia þetta:
“Um leið og við hittum teymið, sem hefur nú þegar byggt upp eftirtektarvert vörumerki og fyrirtæki án nokkurra utanaðkomandi fjárfestinga, urðum við ástfangin af þeim og vörunum þeirra og vildum hjálpa þeim að vaxa. Við ákváðum að fjárfesta í fyrirtækinu til að styrkja það við hráefnisöflun og færa það nær fullri sjálfbærni, sem og að færa það meira út á alþjóðamarkað. Við erum mjög spennt fyrir þessari nýju fjárfestingu og við erum sannfærð um að saman munum við vaxa og stækka”.
Fleira tengt efni:
[feed url=“https://veitingageirinn.is/tag/omnom/feed/“ number=“10″ ]
Mynd: aðsend
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel8 klukkustundir síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn5 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn7 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Frétt6 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð


