Keppni
Iðunn í 10. sæti í EuroSkills matreiðslu keppninni – Myndir og vídeó
Iðunn Sigurðardóttir lenti í 10. sæti af 21 keppendum á EuroSkills matreiðslu keppninni sem fram fór dagana 1. – 3. desember í Gautaborg. Í fyrsta sæti var Johan Kurkela frá Finnlandi, í öðru sæti var Manuela Wechselberger frá Austurríki og í þriðja sæti var Ruth Hansom frá Bretlandi. Þjálfari Iðunnar var Hafliði Halldórsson matreiðslumaður.
Eins og áður segir þá fór EuroSkills keppnin fram dagana 1. – 3. desember s.l. í Gautaborg í Svíþjóð. Keppnin er haldin annað hvert ár á móti WorldSkills keppninni. Keppendur koma víða að frá Evrópulöndunum, 28 löndum og yfir 500 keppendur. Um 65 þúsund gestir komu á keppnisstað.
Sjö keppendur frá Íslandi kepptu í jafnmörgum greinum, en reglur keppninnar gera ráð fyrir því að keppendur séu 25 ára og yngri og mega sveinar og nemar taka þátt í keppninni. Frá Íslandi var keppt í hársnyrtiiðn, matreiðslu, pípulögnum, rafvirkjun, grafísk miðlun, málmsuðu, húsasmíði.
Ísland fékk Medallion for Exellence í pípulögnum, matreiðslu og rafvirkjun, en sú viðurkenning er veitt fyrir faglega vinnu í keppninni.
Það er Samtök ferðaþjónustunnar, SAF, og Matvæla- og veitingafélag Íslands, MATVÍS sem standa fyrir þátttöku Íslands í EuroSkills keppninni í matreiðslu ásamt Verkiðn.
Næsta EuroSkills verður haldið í Búdapest í Ungverjalandi árið 2018.
Vídeó
Með fylgir vídeó af samantekt hjá Gunnari Kjartanssyni sem var einn af keppendum í EuroSkills:
[fbvideo link=“https://www.facebook.com/gunnar.kjartansson/videos/10154340589044888/“ width=“650″ height=“400″ onlyvideo=“1″]
Myndir
Einnig fylgja myndir af Íslenskum keppendunum í öðrum iðngreinum:
Myndir: euroskills2016.com
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn1 dagur síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun10 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn1 dagur síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum










