Frétt
Áhugamenn sjá ekki nýtinguna í eldhúsi OR – Vídeó
Á vef dv.is má sjá frétt með fyrirsögninni: „Innsýn í bruðlið í Orkuveitunni: Engu til sparað við eldhúsið.“
Með fréttinni fylgir svo myndband með skýringunni:
„Myndbandið veitir innsýn í lúxusinn í eldhúsinu, allar græjur og tækni eins og hún gerist best“.
Þetta myndband hefur farið eins og eldur um sinu í netheimum síðustu daga.Ef horft er á myndbandið frá faglegu sjónarhorni má glöggt sjá að tæki og annar búnaður í eldhúsinu sé búinn að margborga sig því það er margsannað að þau eldhús sem eru vel búin tæki og tólum spara mannskap og nýtingu á hráefni svo eitthvað sé nefnt.
Eins og sjá má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan þá virðist mikið hráefni unnið á staðnum sem sparar mikinn kostnað og greinilega er unnið eftir hinu frábæra HACCP kerfi sem tryggir gott hráefni.
Það er ekkert grín ef upp kemur matareitrun í fjölmennum starfsmannahópi eins og hjá OR og slíkt myndi svo sannarlega kosta skildinginn.
Mynd: skjáskot úr myndbandi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 klukkustundir síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Markaðurinn7 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Frétt6 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
-
Markaðurinn15 klukkustundir síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum


