Freisting
Kornverð hækkar ört vegna þurrka í Rússlandi

Í Rússlandi er þegar farið að gæta hækkana á verði hveitis og mjólkur í verslunum og í öðrum löndum er þess ekki talið langt að bíða að verð á mat sem byggist á kornuppskerunni muni hækka á næstu vikum og mánuðum. Það á fyrst og fremst við um kornvörur á borð við brauð og kex en bjór á eflaust einnig eftir að hækka í verði, sem og mjólk og kjöt af skepnum sem fóðraðar eru á korni.
Hitabylgjan sem veldur þessum þurrkum hefur legið eins og mara yfir Rússlandi og lýðveldunum austan og vestan við það en þar er stór hluti þess korns sem seldur er á heimsmarkaði ræktaður. Lýst hefur verið yfir neyðarástandi í 27 héruðum í Rússlandi og þegar er ljóst að korn hefur eyðilagst á 10,3 milljónum hektara lands. Ekki sér fyrir endann á hitabylgjunni því veðurfræðingar spá því að hún standi út næstu viku og að hitinn verði um 40 gráður víðast hvar.
Rússneska landbúnaðararáðuneytið hefur þegar lækkað áætlanir sínar um kornuppskeru ársins úr 90 milljónum tonna í 70-75 milljónir tonna en margir efast um að það markmið náist. Rússneskir ráðamenn reyna að draga úr vandanum með því að segjast eiga miklar kornbirgðir að moða úr, en talsmenn kornræktenda þar eystra spá því að útflutningur á korni muni dragast saman um þriðjung, ef ekki helming á þessu ári miðað við árið 2009.
Þessu til viðbótar er bent á að kornuppskera muni dragast saman um þriðjung í Kanada vegna rigninga þegar sáning stóð yfir. Uppskera virðist ætla að verða með eðlilegum hætti í Bandaríkjunum og Evrópu, þó með þeirri undantekningu að í Evrópu var sáð í færri hektara en árið áður.
Greint frá í Bændablaðinu.
-
Keppni4 dagar síðanKosning hafin, hver hlýtur titilinn Kokkur ársins 2026?
-
Keppni1 dagur síðanÍsak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
-
Keppni4 dagar síðanLesendakönnun, hver verður Grænmetiskokkur ársins 2026?
-
Keppni2 dagar síðanHver hreppir titilinn Kokkur ársins 2026? Bein útsending
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanKokteilagerðin færir kokteilalistina heim til fólks
-
Keppni4 dagar síðanFimm keppendur takast á um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMichelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta
-
Markaðurinn4 dagar síðanOstunnendur fá nýtt uppáhald með piparkrydduðum Dala Auði





