Pistlar
Ungliðastarfið
Mikil sigling er komin á ungliðastarfið í matreiðslu undir handleiðslu Bjarka Hilmarssonar og Rögnvaldar Guðbrandssonar sem hafa tekið verkefnið að sér. Tilgangurinn með ungliðastarfinu er að ýta enn frekar undir áhuga okkar efnilegustu nema í matreiðslu og hver veit nema í þessum hópi leynist landsliðsmenn framtíðarinnar.
Mikill áhugi og dugnaður einkennir hópinn sem hefur þegar tekið að sér eitt verkefni og leyst það vel af hendi. Var það hlaðborð sem sérstaklega var sett upp fyrir nemendafélag menntaskólans á Ísafirði í tilefni af sólrisuhátíðinni, sem haldinn er árlega þar í bæ. Fjórir fræknir félagar úr Ungkokkum Íslands fóru vestur og lögðu nótt við dag til að setja upp glæsilegt hádegishlaðborð fyrir nemendur og kennara. Heppnaðist þetta frábærlega og þótti maturinn einstaklega góður, frumlegur og fallega fram borinn. Hægt er að sjá myndir frá Ísafirði á vef freistingar og heimasíðu Klúbbs matreiðslumeistara.
Til hamingju Ungkokkar Íslands og haldið áfram á þessari braut. Bjarki er örugglega búinn að segja ykkur að það kostar svita og tár að verða góður í þessu fagi.
Ingvar Sigurðsson
Forseti Klúbbs matreiðslumeistara
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau




