Vertu memm

Freisting

Matvælaverð á Íslandi – skortur veldur hækkandi verðlagi

Birting:

þann

SAF (Samtök ferðaþjónustunnar) hafa lengi mótmælt háu matarverði og óskað eftir að ríkisvaldið á hverjum tíma taki á þessu stóra vandamáli í íslenskri ferðaþjónustu.  Há vörugjöld, innflutningshöft og tollkvótar hafa leitt til þess að matarverð á Íslandi er tugum prósenta hærra en í öðrum löndum Evrópu. 

Framkvæmdastjóri SAF skrifaði grein um matarverð í Morgunblaðið 25.6. og er hægt að lesa hana hér að neðan:

Matvælaverð á Íslandi –
skortur veldur hækkandi verðlagi

Miklar umræður um matvælaverð hafa verið nú í vor meðal veitingamanna en það er einn mikilvægasti grunnþáttur í ferðaþjónustu að veita ferðamönnum mat og drykk og hafa veitingamenn mátt búa við ýmis heimsmet í verðlagi aðfanga sinna, bæði matvæla og áfengis.  Ástæða þessara miklu umræðna er starf það sem unnið er í matvælaverðsnefnd forsætisráðuneytisins en niðurstaðna hennar er að vænta á næstunni.  Skýrslur sem gefnar hafa verið út um matvælaverð síðustu árin sýna ljóslega að matarverð á Íslandi er mun hærra en í löndum Evrópusambandsins. Sérstaklega hefur verið litið til skýrslu Hagfræðistofnunar sem gefin var út árið 2004 þar sem fram kom að verð í flestum matarflokkum væri 30-70% hærra en í ESB og var þá miðað við árið 2001.  Margir urðu til þess að gagnrýna hversu gamlar þessar upplýsingar væru en benda má á skýrslu norrænna samkeppniseftirlita frá því í desember 2005 þar sem kemur fram að verð á matvörum í verslunum á Íslandi sé 42% hærra en í 15 löndum ESB.  Ótal fleiri skýrslum er til að dreifa og því er öllum ljós staða okkar í þessu máli.

Í upphafi þessa árs setti forsætisráðuneytið fyrrgreinda nefnd á laggirnar en hún á að semja tillögur sem miða að því að færa matvælaverð nær því sem gengur og gerist í helstu nágrannaríkjum.  Í nefndinni eiga sæti fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs og bænda og treysta menn því að þar sé verið að vinna raunhæfar tillögur til úrbóta.  Veitingamenn hafa lagt mikla áherslu á að vörugjöld á matvöru verði afnumin þegar í stað, að aðflutningshindranir verði afnumdar í skrefum og að öll sala matvara sé í sama virðisaukaskattsþrepi, jafnt hrá sem soðin.  Matur er í dag seldur með svo fjölbreyttum hætti og á svo margbreytilegum sölustöðum að það er orðin brýn nauðsyn að jafna og einfalda skattkerfið.  Veitingamenn hafa lengi bent á slæma stöðu sína en þeir eru ásamt öðrum fyrirtækjum í ferðaþjónustu í mikilli samkeppni á alþjóðavettvangi. 

Nú mega veitingamenn og kaupmenn búa við skort á ákveðnum landbúnaðarvörum og þá eru tollkvótar boðnir út sem stórhækka vöruna í verði.  Þar að auki duga tollkvótarnir ekki og þá þurfa fyrirtækin að flytja vörurnar inn á ofurtollum.  Þetta er ekki boðlegt.

Íslenskir neytendur, þ.m.t. veitingamenn, hafa í áraraðir spurt hvort stjórnvöldum á hverjum tíma þyki það eitthvert lögmál að Íslendingar greiði langhæsta matarverð sem finnst á byggðu bóli og nú mega menn þar að auki búa við skort á meðan offramboð er á landbúnaðarvörum í nágrannalöndum.  Við munum fá svör við því þegar matvælaverðsnefndin hefur lagt tillögur sínar í dóm stjórnvalda en miklar vonir eru bundnar við starf þetta.

Greint frá á heimasíðu Samtaka ferðaþjónustunnar

[email protected]

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið