Uncategorized
Vínskólinn tekinn til starfa

Vínnámskeið og vínferðir eru á dagskrá hjá nýstofnaða Vínskólanum, sem opnaði sína heimasíðu www.vinskolinn.is í gær 1. mars. Vínskólinn var stofnaður í janúar 2006 af Dominique Plédel Jónsson, sem hefur haldið vínnámskeið s.l. 2 ár með miklum vinsældum og hefur margra ára reynslu af vínheiminum. Skólinn er óháður og sjálfstæður og hefur aðsetur í nýja fallega hótelinu við Aðalstræti 16, Hótel Reykjavík Centrum, en hann verður í samstarfi við alla aðila á markaðinum sem hafa með vínmenningu að gera: veitingahús, innflutningsaðila, vínbúðirnar og fleiri.
Vínnámskeiðin eru ætluð almenningi, sem hefur áhuga á að fræðast um vín einstaklingar, vinnuhópar eða klúbbar (matar-, sauma-, vínklúbbar), dagskráin fyrir næstu mánuðina er komin á heimasíðuna en hópar geta líka pantað námskeið á öðrum dögum. Vinsælt hefur verið að byrja á námskeiði um samsetningu matar og víns, en einnig eru heillandi önnur námskeið til dæmis um vín og villibráð, ítölsk vín, um ýmis vínræktarsvæði í heiminum. Gert er ráð fyrir að bjóða mjög spennandi námskeið um Suður Afríku í tengslum við þemadaga í Vínbúðunum, svo og 2 ítarleg Bordeaux námskeið. Mörg veitingahús í miðborginni veita nemendunum annað hvort 20% afslátt þá daga sem þeir sækja námskeið, eða sérmatseðil á afsláttarverði.
Vínskólinn er líka ætlaður fagfólkinu, þar sem vínfræði- og þjónustunámskeið verða í boði fyrir veitingastaðina sem vilja góða og hagnýta þjálfun fyrir ófaglært starfsfólk en líka símenntun og keppnisþjálfun fyrir þjóna og vínþjóna í samstarfi við Vínþjónasamtökin og félagssamtökin.
Í tengslum við skólann verða svo farnar Vínferðir á mörg spennandi vínsvæði í Evrópu, í samstarfi við Express Ferðir og Iceland Express. Fyrsta ferðin verður farin í maí til Alsace sem hefur heillað svo marga og fyrirhugaðar eru ferðir til Bordeaux, Jerez, Piedmonte, Austurríki, Rioja, Toskana… Þessar ferðir verða frekar stuttar (helgarferðir) með möguleika á að framlengja dvölina. Verðinu verður stillt í hóf þar sem áherslan er lögð á skemmtilega fræðslu um vín og víngerð í gegnum smakkanir og heimsóknir, í beinum tengslum við það besta sem hvert svæði hefur uppá að bjóða.
Allar upplýsingar um Vínskólann eru að finna á www.vinskolinn.is og í síma 898 40 85.
Fréttatilkynning
Heiðar Birnir Kristjánsson
[email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEigandi Sjávarsetursins gagnrýnir harðlega meintan mismun Suðurnesjabæjar á fyrirtækjum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanGóð stemning og öflugt fagfólk á fundi Klúbbs Matreiðslumeistara hjá Bako
-
Markaðurinn3 dagar síðanÁsbjörn Ólafs flytur í glæsilegt húsnæði og blæs til umfangsmikillar lagersölu
-
Uppskriftir4 dagar síðanÓmissandi með þorramatnum – Ljúffeng heimagerð rófustappa
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDiageo losar um eignir – Kína ekki lengur forgangsmarkaður
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDonald Trump hótar 200 prósenta tollum á frönsk vín og kampavín eftir að Frakkar draga lappirnar
-
Frétt4 dagar síðanNeytendur með ofnæmi varaðir við vöru sem seld var í Costco á Íslandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanStóra veislusýningin í Múlabergi





