Uncategorized
Vínþjónakeppni

Þann 18. mars næstkomandi verður haldin vínþjónakeppni. Þemað verður Evrópa þ.e.a.s. skriflegt próf og blindsmökkun á evrópskum vínum.
Til mikils er að vinna, því sigurvegarinn fer til Frakklands í júní og keppir fyrir Íslands hönd í Ruinart vínþjónakeppninni (Evrópumóti vínþjóna).
Keppni í undanúrslitum verður; Skriflegt próf um Evrópu, kampavínsframreiðsla og skiflegt blindsmakk á 2 vínum.
Úrslitin verða þó aðeins þyngri en þó í léttari kantinum þar sem von er á; blindsmakki á vínum, umhelling, matar og vín samsetning, staðfesting á styrktum eða léttum vínum og óvænt verkefni.
VSÍ munu halda námskeið fyrir keppendur og aðra, sem áhuga hafa, fyrir keppnina þar sem farið verður yfir blindsmakk á vínum, spurningar verða lagðar fyrir og farið verður yfir verklega þáttinn ýtarlega. Námskeiðin verða haldinn í fundarsal perlunar þann 6-7mars og 13-14mars kl 10.00 og stendur hvert námskeið í um 1 klukkustund og kostar 1500kr (alla dagana) og er það jafnframt er keppnisgjald.
Skráning og frekari upplýsingar gefur Tolli í síma 891-7091 eða
[email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni3 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn3 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Frétt3 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt5 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn2 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja


