Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Býður upp á ljótar pizzur og fær góða dóma: „Án efa besta pizza bæjarins“

Birting:

þann

Ugly - Pizzastaður

Ugly - PizzastaðurNú á dögunum opnaði nýr pizzastaður á Smiðjuvegi 2, þar sem Pizza 67 var áður til húsa.  Eigandi er Unnar Helgi Daníelsson en hann stefnir á að opna keðju af ljótustu pítsustöðum bæjarins á næstu misserum en pizzastaðurinn heitir Ugly eða Ljótur.

Á meðal ummæla gesta:

„Ég fékk mér ugly pig með þeim betri pítsum ég hef fengið. Topp þjónusta og flottur staður.“

„Kjötbotn þvílík snilld, Pizza án samviskubits og ekkert smá gott.“

„Fékk frábæra þjónustu og ennþá betri pizzu ást á Ugly.“

„Bestu og frumlegustu pizzur bæjarins! Þetta fer fljótt í vana.“

„Án efa besta pizza bæjarins.“

Matseðillinn er girnilegur að lesa, en þar er á meðal pizzaburger, hot wings, chilli nachos og svo er hægt að handsmíða sér eigin pizzu, t.d. með blómkálsbotni, kjötbotni, speltbotni, hveitibotni og svo er valið fjölmargar tegundir af sósum og áleggi.  Og ekki má gleyma eftirréttunum en í boði er brownie baka, bananasplitt, epladraum, beikonvafðar döðlu svo fátt eitt sé nefnt.

Skemmtileg heildarhugmynd að sjá og vert er að kíkja og prufa.

Frumleg og öðruvísi auglýsing frá Ugly er hægt að skoða í meðfylgjandi myndbandi:

[fbvideo link=“https://www.facebook.com/uglypizzaiceland/videos/975094919217793/“ width=“650″ height=“400″ onlyvideo=“1″]

 

Myndir: af facebook síðu Ugly.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið