Vertu memm

Sigurður Már Guðjónsson

Næsti Dunkin’ á Blóma­torgið

Birting:

þann

Dunkin' Donuts á Laugavegi 3

Dunkin’ Donuts á Laugavegi 3

Nýtt Dunkin’ Donuts kaffihús verður opnað á Blómatorginu svokallaða í Kringlunni. Þar verða sæti fyrir um þrjátíu til fjörtíu manns og opnað verður öðru megin við næstu mánaðarmót.

Þetta segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar í samtali við mbl.is. Blómatorgið er þar sem blómabúðin í Kringlunni er, rétt hjá verslun Lyf og Heilsu, í miðju göngugötunnar.

Blómabúðin verður flutt í rýmið þar sem verslun Levi’s var áður, á móti Lyf og Heilsu. Rýminu hefur þá verið skipt í tvennt og verður rúmfataverslunin Lín Design einnig opnuð þar.

Sigur­jón segist spenntur fyrir komu kleinuhringjakeðjunnar í Kringluna og bætir við að ekki sé búið að ákveða opnunardagsetningu en telur víst að það verði í lok október eða byrjun nóvember.

Við viljum hafa allt sem fólk er að sækja í. Það er hugmyndafræði hússins að allir sem í því eru hafi aðdráttarafl á vissan þátt,

segir hann í samtali við mbl.is.

10 starfsmenn til viðbótar

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin’ Donuts á Íslandi, hefur áður sagt að gert sé ráð fyrir að ráða þurfi tíu manns á kaffihúsið í Kringluna en þá verða starfsmenn Dunkin’ á Íslandi alls þrjátíu talsins.

Til stendur að Dunkin’ Donuts staðirnir verði orðnir 16 talsins á Íslandi eftir fimm ár.

Greint frá á mbl.is.

 

Mynd: Smári

Sigurður Már er bæði bakara- og konditormeistari að mennt. Bakaraiðn lærði Sigurður í fjölskyldufyrirtæki sínu Bernhöftsbakarí, en konditorifagið í Chemnitz í Þýskalandi. Sigurður Már er formaður Konditorsambands Íslands og meðlimur í þýska Konditorsambandinu. Hægt er að hafa samband við Sigurð í netfanginu [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið