Smári Valtýr Sæbjörnsson
Lögreglan lokaði hóteli í miðborg Reykjavíkur
Á mánudaginn síðasta lokaði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hóteli í miðborg Reykjavíkur vegna skorts á rekstrarleyfi. Hafði rekstraraðili hótelsins fengið ítrekaða fresti til að ganga frá þeim atriðum sem ullu því að ekki fékkst viðeigandi leyfi, en þegar ljóst var að mál yrðu ekki komin í samt lag innan loka frests, var tekin ákvörðun um að loka hótelinu.
Í tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgasvæðinu segir að þegar til lokunar kom hafði gestum verið komið annað þannig að enginn þeirra neyddist til að fá gistingu á lögreglustöðinni.
Lögreglan ítrekar að rekstraraðilar séu með leyfismál í lagi, allra vegna, enda vill enginn lenda í því mikla raski sem veldur því að lögreglan þurfi að loka með þessum hætti.
Lögreglan mun halda áfram eftirliti með gististöðum enda ekki vanþörf á.
Mynd: úr safni
-
Frétt4 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Keppni1 dagur síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Bocuse d´Or11 klukkustundir síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?




