Smári Valtýr Sæbjörnsson
Völundur Snær ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot
Embætti sérstaks saksóknara hefur höfðað mál gegn matreiðslumanninum Völundi Snæ Völundarsyni fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum.
Upphæð brotanna nemur 17,5 milljónum króna en hann er sakaður um að hafa sem daglegur stjórnandi og stjórnarmaður einkahlutafélagsins VH fjárfesting ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslu einkahlutafélagsins á lögmæltum tíma vegna uppgjörstímabilsins nóvember til desember á rekstrarárinu 2013, að því er fram kemur á visir.is.
Þá er hann einnig sakaður um að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna september til október og nóvember til desember rekstrarárið 2013.
Nemur upphæð þeirra brota 4,5 milljónum króna.
Á vef visir.is segir að embættið sakar hann einnig um að hafa ekki staðið skil á staðgreiðsluskilagrein einkahlutafélagsins á lögmætum tíma vegna greiðslutímabilsins desember 2013 og hafa ekki staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda í samræmi við fyrirmæli laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna ágúst, september, október og desember rekstrarárið 2013, en upphæð þeirra brota nemur þrettán milljónum króna.
Greint frá á visir.is
Mynd: Skjáskot úr myndbandi RIFF kvikmyndahátíðarinnar.

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðan
Fermingarundirbúningur í brennidepli – Kynningarsýning í Múlabergi
-
Frétt5 dagar síðan
Gjaldþrot Hooters: Eftir 40 ár á toppnum er framtíðin óviss
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðan
Matarveisla í Reykjavík: Stjörnukokkar töfra fram íslenska sælkerarétti
-
Markaðurinn24 klukkustundir síðan
Vantar kokka á hótel Hellnar og hótel Húsavík
-
Keppni2 dagar síðan
Nýr vettvangur fyrir brauð-sérfræðinga: Heimsmeistaramót brauð-sommelier í fyrsta sinn
-
Markaðurinn19 klukkustundir síðan
Skapandi konfektmeistari óskast
-
Starfsmannavelta3 dagar síðan
Veitingageirinn titrar: Bloomin’ Brands með umfangsmiklar uppsagnir
-
Markaðurinn24 klukkustundir síðan
Sænsku bollurnar – Semlur