Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Denny’s opnað á Íslandi | Bandarísk veitingahúsakeðja velur Ísland sem frumraun í Evrópu

Denny’s var stofnað árið 1953 og í dag eru yfir 1700 Denny´s veitingastaðir staðsettir víðsvegar um heim nema í Evrópu.
Hópur íslenskra fjárfesta hefur gert samning við bandarísku veitingahúsakeðjuna Denny’s og er stefnt að því að opna þrjá veitingastaði hér á landi á næstu tveimur árum. Denny’s eða Denny’s Diner er ein þekktasta veitingahúsakeðja Bandaríkjanna með um 1.700 veitingastaði um allan heim en þó engan í Evrópu.
Harold Butler og Richard Jezak stofnuðu Denny’s Diner árið 1953 í Bandaríkjunum. Staðirnir eru þekktir fyrir að vera alltaf opnir og einn þekktasti réttur þeirra er Denny’s alslemma, morgunverður, en í honum er að finna egg, beikon, pylsur og pönnukökur.
Samkvæmt heimildum DV er fjármögnun langt á veg komin og er verið að setja saman hluthafahópinn. Undirbúningur hefur staðið yfir í nokkurn tíma, nánar á dv.is hér.
Hópurinn leitar nú að hentugu húsnæði og er stefnt á að opna fyrsta staðinn á þessu ári. Ísland yrði þá fyrsti staðurinn í Evrópu þar sem Denny’s opnar. Veitingahúsakeðjan stefnir á að opna fleiri staði í Evrópu á næsta ári og er Ísland fyrsta skrefið í áætlunum fyrirtækisins um innreið sína í Evrópu.
Greint frá á dv.is
Myndir: dennys.com
-
Frétt2 dagar síðanReyndir fagmenn skipa nýja stjórn Klúbbs Framreiðslumeistara
-
Markaðurinn3 dagar síðanGlæsileg sýning í Höllinni
-
Food & fun2 dagar síðanÞessir gestakokkar heimsækja Ísland í tilefni Food & Fun
-
Keppni5 dagar síðanHelga Signý sigraði í Barlady keppninni í annað sinn – Myndir
-
Uppskriftir6 dagar síðanTiramisú brownies með silkimjúku mascarpone kremi
-
Uppskriftir4 dagar síðanFullkominn smáréttur: Gratíneraður Búri með timían og hunangi sem bráðnar í munni
-
Markaðurinn2 dagar síðanHágæða þurrkaðir ávextir frá Secret Garden koma á íslenskan markað
-
Food & fun8 klukkustundir síðanFood & Fun 2026: Allar bókanir fara fram á Dineout í ár






