Uppskriftir
Girnilegar uppskriftir eftir þjóðkunna Íslendinga
Félag gulrófnabænda hefur gefið út uppskriftabækling þar sem gulrófan er í aðalhlutverki. Sjö matgæðingar hafa búið til uppskriftir til að setja í þennan bækling, en þau eru:
Helga Mogensen
Úr eldhúsi Helgu Mogensen eru tilbúnir hollusturéttir og fást í helstu matvötuverslunum.
Rúnar Marvinsson
Rúnar er talsmaður íslenskrar matargerðarlistar og þess að nota í hana íslenskt hráefni.
Sigurlaug Margét Jónasdóttir
Sigurlaug Margét hefur í gegnum árin leitað að hinu ómótstæðilega bragði og unnið matarþætti bæði fyrir Sjónvarpið og Rás eitt.
Solla
Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla eins og hún er kölluð rekur veitingastaðinn GLÓ – samtals fimm staði í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði.
Sveinn Kjartansson
Sveinn rekur AALTO bistro veitinga- og kaffihús í Norræna húsinu.
Yesmine Olsson
Yesmine býður upp á námskeið í indverskri matargerðarlist – auk þess sem hún býður upp á viðburði þar sem bæði indverskur matur og dans eru á boðstólum.
Valentína Björnsdóttir
Valentína rekur veitingastaðinn KRÚSKU við Suðurlandsveg og einnig fyrirtækið Móðir Náttúra.
Meðfylgjandi er bæklingurinn í máli og myndum og verður hann dreifður í fjölmargar búðir, en markmiðið er að auka neyslu á gulrófunni og halda markaðshlutdeild hennar í harðri samkeppni.
Myndir og bæklingur: rofa.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðan
Slippurinn í Vestmannaeyjum tekur sitt síðasta tímabil 2025 – Gísli Matt: ástæða lokunarinnar er sú að við trúum því að allt gott taki enda
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðan
La Barceloneta er fyrsti veitingastaðurinn á Íslandi sem hlýtur ICEX viðurkenningu
-
Uppskriftir4 dagar síðan
Vinsælustu uppskriftirnar árið 2024
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Þessi réttir stóðu upp úr hjá Michelin eftirlitsmönnum á árinu 2024
-
Frétt3 dagar síðan
Mest lesnu fréttir ársins 2024 á Veitingageirinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Fálkahúsið og Kokka verðlaunuð fyrir bestu jólaskreytingarnar á árinu sem var að líða
-
Markaðurinn3 klukkustundir síðan
Myndaveisla – Franski bakarameistarinn Remy Corbet Daniel Jean kynnti aldagamlar aðferðir við súrdeigs- og sætabrauðsbakstur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Ertu frumkvöðull í íslenskri matvælaframleiðslu? 20 milljónir í boði fyrir matarfrumkvöðla