Frétt
QR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
Veitingastaðir uppfylla ekki reglur um verðmerkingar með því einu að hafa QR-kóða við inngang sem vísar á matseðil á netinu. Þetta kemur fram í úrskurði áfrýjunarnefndar neytendamála sem staðfesti ákvörðun og sekt Neytendastofu gagnvart rekstraraðila veitingastaðarins Fröken Selfoss.
Neytendastofa greindi frá niðurstöðunni 2. nóvember, en úrskurður nefndarinnar var kveðinn upp 8. september síðastliðinn.
Matseðillinn þarf að vera sýnilegur
Málið hófst eftir að Neytendastofa kannaði verðmerkingar hjá verslunum og þjónustufyrirtækjum á Selfossi í janúar 2025.
Við skoðun á Fröken Selfoss kom í ljós að matseðill með verðskrá var ekki til sýnis við inngang staðarins. Rekstraraðilinn, ÁB veitingar ehf., hafði hins vegar komið fyrir fjórum skiltum fyrir utan veitingastaðinn með QR-kóða sem vísaði á matseðil og verðskrá á vefnum.
Áfrýjunarnefndin taldi þá framsetningu ekki jafngilda því að matseðillinn sjálfur væri sýnilegur við innganginn.
Samkvæmt reglum um verðupplýsingar við sölu á þjónustu skulu veitingahús ávallt hafa matseðil með verðskrá við inngöngudyr. Gestir eiga því að geta kynnt sér matseðilinn rétt innan eða utan við innganginn, án aðstoðar starfsfólks.
Matseðill inni á staðnum dugði ekki
Rekstraraðilinn benti einnig á að prentaðir mat- og drykkjarseðlar væru á barborði, um tveimur metrum frá innganginum.
Nefndin taldi það ekki fullnægjandi þar sem gestir þyrftu að ganga inn á veitingastaðinn og taka seðlana í hönd til að kynna sér verð og úrval. Matseðillinn þyrfti að vera sýnilegur við inngöngudyrnar.
Í úrskurðinum kom jafnframt fram að þótt mörgum neytendum væri tamt að nota QR-kóða fæli slíkt fyrirkomulag í sér minni upplýsingagjöf en reglurnar gerðu ráð fyrir.
Sektin staðfest
Neytendastofa lagði 50 þúsund króna stjórnvaldssekt á fyrirtækið 15. maí 2025. Rekstraraðilinn kærði ákvörðunina og taldi meðal annars að stofnunin hefði ekki veitt nægilega skýrar leiðbeiningar og að meðalhófs hefði ekki verið gætt.
Áfrýjunarnefndin féllst ekki á þær málsástæður og staðfesti ákvörðun Neytendastofu og sektarfjárhæðina.
Niðurstaðan hefur þýðingu fyrir íslenska veitingastaði sem hafa fært matseðla sína alfarið yfir á stafrænt form. QR-kóði getur áfram veitt gestum aðgang að ítarlegri upplýsingum, en samkvæmt úrskurðinum kemur hann ekki í stað sýnilegs matseðils með verðskrá við innganginn.
Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.
Myndirnar eru frá formlegri opnun staðarins 29. september 2023. Myndir: Facebook/Miðbær Selfoss.
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag






