Vertu memm

Keppni

Janus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni

Birting:

þann

Janus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni - Arctic Young Chef (AYC)

Keppendurnir sjö sem tóku þátt í íslensku undankeppni Arctic Young Chef í Hótel- og matvælaskólanum í MK.

Góð stemning og mikil spenna voru í Hótel- og matvælaskólanum í MK þegar undankeppni matreiðslukeppninnar Arctic Young Chef (AYC) fór fram samhliða 30 ára afmælishátíð skólans.

Keppnin er haldin í nánu samstarfi við NORA, Nordic Atlantic Cooperation, og bar viðburðurinn vott um mikla grósku meðal ungra matreiðslumanna.

Janus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni - Arctic Young Chef (AYC)

Björn Skúlason, maki forseta Íslands, og Haraldur Jóhann Sæmundsson, framkvæmdastjóri Hótel- og matvælaskólans í MK, fylgdust með keppninni.

Aðalhráefni keppninnar voru svið og skata. Verkefnið reyndi bæði á útsjónarsemi og faglega kunnáttu keppendanna, sem útbjuggu nýstárlega rétti úr þessum hefðbundnu íslensku hráefnum.

Dómnefndina skipuðu matreiðslumennirnir Ari Freyr Valdimarsson, Gunnar Karl Gíslason, Þráinn Freyr Vigfússon, Gutti Winther og Enok Burkni.

Takmarkaður tími til undirbúnings

Janus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni - Arctic Young Chef (AYC)

Janus Þorsteinsson Roelfs, sigurvegari íslensku undankeppni Arctic Young Chef.

Janus Þorsteinsson Roelfs, matreiðslunemi á Grand Hótel Reykjavík, stóð uppi sem sigurvegari eftir glæsilega frammistöðu. Hann stefnir á að ljúka náminu og taka sveinspróf í matreiðslu vorið 2027. Janus segir undirbúningstímann fyrir keppnina hafa verið knappan og að hann hefði gjarnan viljað hafa meiri tíma.

„Ég náði til dæmis ekki að prófa allt sem ég var með á matseðlinum fyrr en eftir að ég hafði skilað uppskriftarblöðunum.

Undirbúningurinn fólst að mestu í því að fá álit frá frábærum matreiðslumönnum í kringum mig. Síðan náði ég einni tímaæfingu daginn fyrir keppnina,“

segir Janus Þorsteinsson Roelfs í samtali við Veitingageirann.is.

Janus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni - Arctic Young Chef (AYC)

Sigurvegarinn Janus Þorsteinsson Roelfs ásamt Birni Skúlasyni sem afhenti honum verðlaunin.

Svið voru honum ekki framandi en hann hafði ekki áður unnið með ferska tindabikkju.

„Svið eru hráefni sem ég þekki ágætlega en ég hafði aldrei áður unnið með tindabikkju. Ég nálgaðist verkefnið fyrst og fremst með það í huga að nýta sem mest af hráefnunum sem lögð voru fyrir mig.“

Alls tóku sjö ungir matreiðslumenn þátt í keppninni. Aron Einar Bjarkason varð í öðru sæti og Kayamm Gurung hreppti þriðja sætið. Björn Skúlason, maki forseta Íslands, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn.

Janus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni - Arctic Young Chef (AYC)

Frá vinstri: Aron Einar Bjarkason, sem varð í öðru sæti, sigurvegarinn Janus Þorsteinsson Roelfs, Kayamm Gurung, sem varð í þriðja sæti, og Björn Skúlason, maki forseta Íslands.

Tók þátt til að ögra sjálfum sér

Þetta var fyrsta matreiðslukeppnin sem Janus tekur þátt í. Hann segir sigurinn hafa komið sér skemmtilega á óvart enda hafi hann fyrst og fremst tekið þátt til að ögra sjálfum sér.

„Sigurinn þýðir mikið fyrir mig þar sem ég gekk inn í þetta frekar til að ögra sjálfum mér en til að vinna. Sex aðrir frábærir matreiðslumenn kepptu á móti mér og ég tel að litlu hafi mátt muna,“

segir Janus.

Stefnir á íslenskan sigur í Hörpu

Mikið stendur til hjá Arctic Young Chef á næstu misserum. Næsta undankeppni verður haldin í Noregi síðar á árinu og lokaundankeppnin fer fram í Grænlandi á næsta ári.

Janus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni - Arctic Young Chef (AYC)

Dómnefnd Arctic Young Chef að störfum í keppniseldhúsinu.

Hápunkturinn verður síðan úrslitakeppni í Hörpu á næsta ári, þar sem sigurvegarar undankeppnanna keppa um lokasigurinn.  Janus hyggst leggja allt í sölurnar til að tryggja Íslandi sigur.

„Ég ætla að leggja mig allan fram í úrslitunum og reyna að tryggja íslenskan sigur. Ég bíð spenntur eftir að sjá hráefnislistann fyrir lokakeppnina svo ég geti hafið undirbúning matseðilsins og þróun uppskriftanna.“

Myndir: Karl Petersson

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið