Viðtöl, örfréttir & frumraun
Fjölbreyttar keppnir þegar Hótel- og matvælaskólinn fagnar 30 árum
Hótel- og matvælaskólinn í Menntaskólanum í Kópavogi fagnar 30 ára afmæli laugardaginn 5. september. Af því tilefni verður efnt til fjölbreytts hátíðardags í skólanum þar sem keppnir, matur og kynningar verða í aðalhlutverki.
Gestir geta meðal annars fylgst með Arctic Young Chef-keppninni, gúrkuskurðarkeppni, rófukrullingskeppni, kleinuhringjakeppni og þjónaþrautabraut. Þá verður landslið kjötiðnaðarmanna með kjötbúð á staðnum.
„Viðburðurinn er hluti af afmælishaldi skólans og markar mikilvægan áfanga í sögu hans.
Með honum viljum við kynna starfsemi Hótel- og matvælaskólans, efla tengsl við gesti og samstarfsaðila og skapa ánægjulega samverustund fyrir alla aldurshópa,“
segir Haraldur Jóhann Sæmundsson, framkvæmdastjóri Hótel- og matvælaskólans í MK.
Keppnir af ýmsu tagi
Arctic Young Chef-keppnin stendur yfir frá klukkan 11 til 16 og á sama tíma verður boðið upp á matarmarkað smáframleiðenda, matarvagna og fyrirtækjakynningar.
Gúrkuskurðarkeppnin hefst klukkan 11.30 og rófukrullingskeppnin klukkan 12.30. Klukkan 14 verður síðan blásið til kleinuhringjakeppni þar sem lögreglan kemur við sögu í dómnefndinni. Að henni lokinni, klukkan 14.30, hefst þjónaþrautabraut þar sem reynt verður á færni þátttakenda.
Gestir geta einnig litið við í pop-up kleinuhringjabakaríi og sótt japönsk matreiðslunámskeið á vegum japanska sendiráðsins. Námskeiðin verða haldin frá klukkan 12 til 13 og aftur frá klukkan 14 til 15.
„Dagskráin verður fjölbreytt og fjölskylduvæn. Gestir geta fylgst með keppnum, heimsótt matarmarkað, kynnt sér fyrirtæki og samstarfsaðila, notið matar og tekið þátt í ýmiss konar afþreyingu,“
segir Haraldur Jóhann.
Hátíðin stendur frá klukkan 11 til 16 og eru allir velkomnir að líta við og taka þátt í afmælisfögnuðinum.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn2 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Frétt6 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt5 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni1 dagur síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn1 dagur síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt6 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins



