Viðtöl, örfréttir & frumraun
Myndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu
Þótt margir myndu ætla að stærsta hlaðborð Bandaríkjanna væri að finna í Las Vegas, Atlantic City eða jafnvel Texas er raunin allt önnur. Stærsta hlaðborð landsins er staðsett í smábænum East Earl í Lancaster-sýslu í Pennsylvaníu, þar sem veitingastaðurinn Shady Maple Smorgasbord hefur um árabil laðað að sér gesti hvaðanæva að.
Hlaðborðið er yfir 200 fet að lengd, eða rúmlega 60 metrar, og er talið það stærsta sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Árlega heimsækja yfir ein milljón gesta staðinn sem hefur orðið einn þekktasti veitingastaður svæðisins.
Frá litlum sveitabás í vinsælan veitingastað
Saga Shady Maple hófst með einföldum sveitabás þar sem hjónin Mr. og Mrs. Martin seldu afurðir frá býli sínu undir hlyni í garðinum sínum. Árið 1970 tóku dóttir þeirra Miriam Weaver og eiginmaður hennar við rekstrinum og þróuðu hann áfram í matvöruverslun.
Árið 1982 var starfsemin stækkuð með kaffiteríu sem upphaflega rúmaði um 100 gesti. Skömmu síðar var henni breytt í hlaðborðsveitingastað sem tók 300 gesti í sæti og naut strax mikilla vinsælda. Eftir ítrekaðar stækkanir og endurbætur getur veitingastaðurinn í dag tekið á móti allt að 1.200 gestum í einu.
Getur afgreitt allt að 9.000 gesti á dag
Á matseðlinum er aðallega hefðbundinn matur úr matargerð Pennsylvania Dutch samfélagsins, sem á rætur að rekja til þýskra innflytjenda. Þar er lögð áhersla á einfalda og matarmikla rétti, meðal annars steikt og reykt kjöt, kartöflur, grænmeti og aðra heimilislega rétti.
Þrátt fyrir látlausan mat hefur Shady Maple notið mikilla vinsælda í áratugi. Kvöldverðarhlaðborð kostar um 23 bandaríkjadali á mann, sem jafngildir um 3.200 íslenskum krónum.
Samkvæmt upplýsingum frá staðnum er hægt að afgreiða allt að 9.000 gesti á einum degi, sem gerir reksturinn að einni stærstu hlaðborðsstarfsemi Bandaríkjanna.
Kíkt á bak við tjöldin
Shane Uriot birti nýverið myndband á YouTube-rás sinni þar sem hann fékk að líta á bak við tjöldin á Shady Maple Smorgasbord. Þar sýnir hann hvernig fjölskyldurekni veitingastaðurinn tekst á við að framleiða og framreiða mat fyrir þúsundir gesta á dag án þess að slaka á gæðum.
Hægt er að horfa á myndbandið hér að neðan:
Myndir: Skjáskot úr myndbandi
-
Markaðurinn4 dagar síðanLangar þig að reka eldhús með mikla möguleika?
-
Frétt6 dagar síðanEinkakokkar meðal eftirsóttustu matreiðslumanna heims
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLitlu hlutirnir skipta mestu máli hjá Agga Sverris
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanHeilum gámi af kampavíni stolið á leið til Íslands
-
Frétt5 dagar síðanEinsi Kaldi og Vöruhúsið semja við Vestmannaeyjabæ
-
Frétt6 dagar síðanVanmerkt pestósósa innkölluð úr verslunum Krónunnar
-
Frétt7 dagar síðanPálmasykur frá Royal Orient innkallaður
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerskt íslenskt kínakál komið á markað







