Viðtöl, örfréttir & frumraun
Diskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
Bókasöfn víða um land og Slow Food á Íslandi hafa tekið höndum saman í fræðsluátaki gegn matarsóun í tengslum við sjálfbærniviku Sameinuðu þjóðirnar, sem stendur yfir í viku 17. Markmiðið er að vekja athygli á því hvernig megi draga úr sóun, nýta hráefni betur og gefa afgöngum nýtt líf.
Á dagskrá eru fjölbreyttir viðburðir um allt land þar sem lögð er áhersla á fræðslu, samtal og hagnýtar lausnir. Þar má finna fyrirlestra, umræður og lifandi viðburði fyrir fólk á öllum aldri.
Hápunktur vikunnar verður laugardaginn 25. apríl þegar alþjóðlegi diskósúpudagurinn verður haldinn hátíðlegur meðal annars á Bókasafni Garðabæjar og í Rúnalist Galleríi. Þar verður hráefni sem annars hefði farið til spillis breytt í súpur í léttu og skemmtilegu andrúmslofti.
Aðstandendur hvetja landsmenn jafnframt til að deila hugmyndum að nýtingu afganga ( Tög: #EnginMatarsóun #Vika17 #AfgangaGlowUp ), enda leynast oft verðmæti í mat sem fær að njóta sín daginn eftir í nýrri mynd. Með því að miðla reynslu og uppskriftum má draga úr sóun og nýta hráefni á skynsamlegri hátt.
Viðburðir víðs vegar um landið
Akureyri
29. apríl – Minni sóun, meiri verðmæti, Dísa Óskars, Amtsbókasafnið – Facebook viðburður
Skagafjörður
25. apríl Diskósúpa í hlöðunni á Stórhól í Skagafirði. Rúnalist Gallerí, diskósúpa í Hlöðunni Stórhóli Rúnalist Gallerí opið alla helgina 25-26. apríl kl:12-17 | Facebook viðburður.
Garðabær
25. apríl Diskósúpuveisla og hjólastuð. Bókasafn Garðabæjar. Diskósúpuveisla og hjólastuð með Slow Food á Íslandi og Dr. Bæk | Facebook viðburður.
Mosfellsbær
24. apríl: Lausnin á matarsóun, fyrirlestur Bókasafn Mosfellsbæjar – Facebook viðburður.
Ísafjörður
21. apríl: Afskrifað í pottinn, Salóme Elín Ingólfsdóttir. Bókasafnið Ísafirði – Facebook viðburður.
Myndir: Slow Food
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís








