Viðtöl, örfréttir & frumraun
Kokteilagerðin færir kokteilalistina heim til fólks
Ný þjónusta á sviði kokteilagerðar hefur hafið göngu sína hér á landi undir nafninu Kokteilagerðin, þar sem áhersla er lögð á að færa faglega og skemmtilega kokteilaupplifun beint heim til viðskiptavina.
Að baki verkefninu stendur Sara Rós, barþjónn með reynslu frá Sushi Social og Djúsí Sushi í Smáralind. Hún hefur á undanförnum misserum vakið athygli fyrir árangur sinn í kokteilakeppnum, meðal annars með öðru sæti í Tipsy x Martini og sigri í Whitley Neill keppninni sem fram fór í mars.

Sara Rós tryggði sér sigur í Whitley Neill kokteilakeppninni með framúrskarandi frammistöðu.
Mynd: Innnes
„Mig langaði að ögra sjálfri mér meira og setja mig í „the hot seat“,“
segir Sara Rós um upphafið í samtali við veitingageirinn.is.
„Frekar að byrja og mistakast heldur en að sjá eftir að hafa ekki reynt.“
Kokteilagerðin býður upp á bæði kokteilakennslu í heimahúsum og veisluþjónustu. Sérstaða verkefnisins felst meðal annars í því að hver þátttakandi fær sín eigin áhöld og persónulega leiðsögn, sem gerir upplifunina bæði lifandi og aðgengilega.
„Við sjáum um að koma með öll áhöld og hráefni svo fólk geti einbeitt sér að því að hafa gaman og notið sín,“
útskýrir hún.
„Allir fá sín eigin áhöld að láni og upplifa kennsluna á persónulegan og skemmtilegan hátt.“
Hugmyndin kviknaði að hluta til vegna eftirspurnar úr nærumhverfi hennar, þar sem vinir og fjölskylda sýndu þjónustunni mikinn áhuga. Um leið sá hún tækifæri til að bjóða upp á nýja nálgun sem lítið hefur verið í boði hérlendis.
„Ég hef ekki tekið eftir að einhver sé að bjóða upp á kokteilakennslu í heimahúsum þar sem hver og einn gestur fær sín eigin áhöld,“
segir Sara Rós.
Þjónustan er ætluð fjölbreyttum hópum, hvort sem um er að ræða vinahittinga, gæsanir, afmæli eða viðburði fyrirtækja. Markmiðið er að skapa stemningu þar sem fræðsla og skemmtun fara saman.
Að mati Söru Rósar liggur galdurinn í einfaldleikanum þegar kemur að góðum kokteilum. „Góður kokteill er spennandi en ekki of flókinn. Það er ákveðin lína þar sem jafnvægi næst á milli frumleika og einfaldleika,“
segir hún.
Fram undan er áframhaldandi uppbygging verkefnisins, þar sem hún vonast til að geta stækkað teymið og mætt aukinni eftirspurn á næstu misserum.
„Ég vona að Kokteilagerðin þróist og verði stærri. Start-up tekur tíma en markmiðið er að byggja þetta upp og bæta við fleiri traustum barþjónum.“
Segir Sara að lokum.
Nánari upplýsingar um Kokteilagerðina má finna á kokteilagerdin.is auk þess sem verkefnið er virkt á samfélagsmiðlum undir sama nafni.
Myndir: úr einkasafni
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn5 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni2 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn1 dagur síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Frétt3 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn





