Keppni
Þessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes

Frá keppninni árið 2024.
Sigurjón frá Reykjavik Cocktails 1 sætið ásamt Edward frá Halewood Whitley Neill
Whitley Neill kokteilakeppnin fer fram í húsakynnum Innnes að Korngörðum 3 í Reykjavík miðvikudaginn 11. mars kl. 20:00. Gestir geta átt von á líflegu kvöldi þar sem kokteilagerð, vörukynningar og góð stemning fara saman. Boðið verður upp á pinnamat og úr salnum er glæsilegt útsýni yfir Esjuna og Faxaflóa. Allir eru velkomnir.
Keppnin er haldin í samstarfi Barþjónaklúbbsins og Innnes. Þátttakendur sendu inn uppskrift af eigin Whitley Neill kokteil þar sem hugmyndaflug og framsetning spila stórt hlutverk.
Upphaflega stóð til að velja tíu keppendur úr innsendum uppskriftum. Þegar til kom reyndist úrvalið það sterkt að fulltrúi frá Whitley Neill ákvað að velja tólf keppendur til úrslita.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu sætin. Þar ber hæst ferð til London þar sem sigurvegarinn fær að heimsækja Whitley Neill og taka þátt í að þróa sitt eigið gin. Auk þess eru í verðlaun Whitley Neill vörur og glæsilegur eignabikar.
Reglur undankeppninnar voru þannig að þemað var frjálst en skilyrði var að nota að minnsta kosti 3 cl af Whitley Neill vöru í kokteilnum. Umsóknir voru sendar til Whitley Neill sem sá um að velja keppendur til úrslita.
Þeir tólf barþjónar sem keppa til úrslita eru eftirfarandi, raðað í stafrófsröð:
Auður Gestsdóttir, Jungle.
Heimir Morthens, Drykk Bar.
Ísar Bjarki, Social.
Jakob Alf, Veður.
Kría, Tres Locos.
Leó Snæfeld, Jungle.
Lilja Ísabel, Sushi Social.
Ragnar Erluson, Lóla.
Sara Rós, Djúsí Sushi.
Sindri Árnason, Bingó.
Viktoría Lazar, Hjá Höllu.
Þorgeir Helgason, 27 Mathús.
Meðfylgjandi myndir tók Rebekka Rut Marinósdóttir og eru þær frá keppninni árið 2024. Þá hreppti Sigurjón Tómas Hjaltason fyrsta sætið, Robert Proppé varð í öðru sæti og Guðrún Björk í þriðja. Verðlaun fyrir frumlegasta kokteilinn hlaut Kría.
-
Frá keppninni árið 2024.
2. sætið Robert Proppé frá Drykk bar Pósthús Mathöll ásamt Edward frá Halewood Whitley Neill
-
Frá keppninni árið 2024.
3. sætið Guðrún Björk frá Berjaya Iceland hotels ásamt Edward fra Halewood Whitley Neill
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn4 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni6 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Frétt3 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Markaðurinn6 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna





