Markaðurinn
Segðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
Ef börnin mín fengju að ráða væri grjónagrautur í matinn að minnsta kosti annan hvern dag. Sem er auðvitað kannski vel í lagt en sem betur fer kunnum við foreldrarnir vel að meta grjónagraut líka. Yfirleitt bjóðum við upp á brauð með alls kyns áleggi með og jafnvel kalda lifrarpylsu og blóðmör með.
Grjónagrautur er ódýr matur og tilvalið að skella í graut þegar þarf að nýta mjólk sem fer að koma á tíma. Eini gallinn við grjónagraut sem gerður er frá grunni er líklega sá að viðbrenndur grautur er óætur og til þess að varna því að hann brenni við þarf að standa við pottinn og hræra stöðugt í.
Nennum við því alltaf? Alls ekki.
Þá kemur ofnbakaður grjónagrautur sterkt inn. Öllu hráefni skellt í eldfast mót, álpappír settur þétt yfir og grauturinn eldar sig sjálfur. Algjörlega lífsbreytandi eldunaraðferð og enginn bragðmunur.
Þennan verðið þið að prófa!
Innihald
4 skammtar
260 g grautargrjón
1 tsk. salt
1 1⁄2 l nýmjólk + auka í lokin
2 tsk. vanilludropar
70 g rúsínur (má sleppa)
Skref 1
- Hitið ofninn í 170°C, undir og yfirhita.
- Setjið grjónin í eldfasta mótið og stráið salti yfir. Hellið mjólkinni og vanilludropunum þar yfir.
- Stráið rúsínum jafn yfir formið ef þið notið þær.
- Setjið álpappír þétt yfir mótið og reynið að passa að hvergi sé opið.
Skref 2
- Bakið grautinn í 90 mín.
- Þegar 5 mínútur eru eftir af tímanum, takið þá álpappírinn af og hrærið upp í grautnum og bætið við smá mjólkurslettu ef ykkur finnst þess þurfa.
- Berið fram með því sem ykkur dettur í hug.
Höfundur: Valgerður Gréta Gröndal – Gottimatinn.is
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Frétt7 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




