Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Hamborgarabúlla opnuð í Berlín

Birting:

þann

Hamborgarabúllu Tómasar í Berlín

Við erum að fara að opna í Berlín í apríl

, segir Kristín Gunnarsdóttir, innanhússarkitekt og eigandi Hamborgarabúllu Tómasar í samtali við Fréttablaðið.  Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Búllan opnar útibú utan landsteinanna.

Við erum nú þegar búin að opna tvær Búllur í London og það hefur gengið vonum framar

, segir Hildur en Bretarnir virðast kunna vel við Búlluborgarann ef marka má gagnrýni á TripAdvisor. Þar fær hamborgarastaðurinn fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögulegum.

Þetta er ofboðslega falleg Búlla, staðurinn er tilbúinn en við erum bara að stíga seinustu skrefin varðandi leyfi og slíkt

, segir Hildur sem vill meina að gæði borgarans muni ekki skerðast.

Við viljum halda sömu stemningu og er á staðnum hérna heima

, segir Hildur og bætir við að hugmyndin á bak við Hamborgarabúlluna sé ekki að hún sé formlegur veitingastaður.

Þetta er meira eins og vinir séu að bjóða í grill

, segir Hildur og útilokar ekki að Hamborgarabúllan muni opna fleiri staði í öðrum löndum í framtíðinni.

Við erum bara að byrja, það þarf að sinna hverju barni fyrir sig þegar það er að fæðast.

 

Greint frá í Fréttablaðinu í dag.

Mynd: burgerjoint.de

/Sverrir

 

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið