Viðtöl, örfréttir & frumraun
Beint frá býli dagurinn haldinn í þriðja sinn
- 4.500 manns heimsóttu hátíðina í fyrra
Beint frá býli dagurinn verður haldinn í ár í þriðja sinn, sunnudaginn 24. ágúst nk, en viðburðurinn hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem fjölskylduvænn hátíðisdagur í íslenskri sveit. Markmiðið er að vekja athygli á hugmyndafræði beint frá býli, efla tengsl milli framleiðenda og neytenda og hvetja fleiri til að hasla sér völl á sviði smáframleiðslu matvæla.
Að deginum standa Samtök smáframleiðenda matvæla (SSFM) og Beint frá býli (BFB). Félögin sameinuðu krafta sína árið 2022 og deila nú bæði framkvæmdastjóra og verkefnisstjóra dagsins. Í SSFM/BFB eru nú 218 félagsmenn, þar af 57 prósent á lögbýlum, 22 prósent í þéttbýli á landsbyggðinni og 21 prósent á höfuðborgarsvæðinu.
Mikill gestastraumur mældist. Google Maps skráði “high traffic”
Beint frá býli dagurinn var fyrst haldinn árið 2023 í tilefni af 15 ára afmæli BFB. Viðtökurnar voru framar öllum væntingum og strax ákveðið að gera viðburðinn árlegan. Í fyrra var hann endurtekinn með enn meiri glæsibrag og mættu þá rúmlega 4.500 gestir samanlagt á sjö lögbýli víðs vegar um landið. Það var um 50 prósent aukning frá árinu áður. Traffíkin var slík að Google Maps skráði hálendisvegi og malarvegi sem “high traffic”.
Gestgjafarnir hafa bæði árin lagt sig fram við að gera daginn sem fjölbreyttastan og áhugaverðastan. Boðið hefur verið upp á markaði þar sem gestir gátu keypt matvæli beint frá framleiðendum, auk þess sem fólk naut samveru í sveitinni og kynntist starfinu að baki. Ánægja gesta hefur verið mikil og sala framleiðenda góð.
Landshlutasamtökin hafa átt stóran þátt í kynningarmálum og jafnframt verið helstu styrktaraðilar. Viðburðirnir hefðu ekki getað verið haldnir án stuðnings þeirra, þó styrkirnir hafi verið mismunandi að umfangi. Þeir aðilar sem veitt hafa þjónustu og vörur hafa jafnframt lagt sitt af mörkum með því að rukka lítið eða jafnvel ekkert sem hefur verið ómetanlegt.
Viðburðurinn í ár verður með svipuðu sniði og áður, enda hefur sú uppbygging reynst vel. Gestum er boðið að eiga dag í sveitinni, hitta smáframleiðendur, kynnast vörum þeirra og kaupa þær milliliðalaust, en um leið styrkja þeir íslenska matarmenningu og samfélög landsins.
Heimasíða: www.beintfrabyli.is
Myndir: Facebook /beintfrabyli
-
Keppni4 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Íslandsmót barþjóna2 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Markaðurinn5 dagar síðanKlassískt lasanja fær nýtt bragð með kotasælu
-
Frétt1 dagur síðanAftur greinist salmonella í nautahakki






