Markaðurinn
Félagsfólk hvatt til að láta vita af óviðunandi aðbúnaði
Vinnustaðaeftirlit Fagfélaganna (MATVÍS, VM og RSÍ) og Eflingar, sem hóf starfsemi í september 2023, hefur það hlutverk að tryggja að aðstæður á vinnustöðum séu í samræmi við gildandi lög og reglur. Með þessu er komið í veg fyrir brotastarfsemi á félagssvæðum stéttarfélaganna og stuðlað að bættri vernd starfsfólks.
Eftirlitið sinnir reglulegum heimsóknum á vinnustaði bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Þar er meðal annars fylgst með aðbúnaði starfsfólks og því hvort farið sé að ákvæðum vinnulöggjafar.
Allir landsmenn geta sent inn ábendingar um óviðunandi aðstæður eða grun um brot á réttindum starfsfólks. Félagsfólk og aðrir sem hafa slíkar upplýsingar eru hvattir til að koma þeim á framfæri.
Við móttöku ábendinga er óskað eftir netfangi og símanúmeri sendanda til að hægt sé að hafa samband ef þörf er á frekari upplýsingum. Tryggður er fullur trúnaður gagnvart öllum sem senda inn ábendingar.
Vinnustaðaeftirlitið minnir á að virkar tilkynningar og vönduð eftirfylgni skipta sköpum í að tryggja sanngjörn og örugg vinnuskilyrði fyrir alla.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Markaðurinn20 klukkustundir síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir
-
Starfsmannavelta21 klukkustund síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn6 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Markaðurinn13 klukkustundir síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava
-
Markaðurinn5 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl




