Frétt
Er sveinspróf í framreiðslu orðið úrelt á Íslandi?
Ragnar Þór Antonsson, sem lauk sveinsprófi í framreiðslu árið 2023, var nýlega sagt upp störfum á fjögurra stjörnu hóteli í Reykjavík þar sem hann var eini faglærði þjónninn. Hinir þjónarnir, allir erlendir og ófaglærðir, héldu hins vegar vinnunni.
Ragnar hefur síðan þá sótt um fjölda starfa í framreiðslu án árangurs og telur að veitingastaðir kjósi frekar ófaglært erlent starfsfólk fram yfir fagmenntaða Íslendinga. Hann lýsir því að honum sé í raun „refsað“ fyrir að hafa sótt sér menntun í faginu og telur að sveinspróf í framreiðslu sé orðið hálfpartinn verðlaust á íslenskum vinnumarkaði í dag.
Nánar er fjallað um málið á visir.is.
Formaður MATVÍS gagnrýnir uppsögn fagmanns: „Enginn raunverulegur sparnaður felst í slíkum ákvörðunum“
Formaður MATVÍS, stéttarfélags iðnaðarmanna í matvæla- og veitingageiranum, lýsir furðu sinni á því að faglærðum þjóni hafi verið sagt upp störfum á hóteli í Reykjavík. Hann telur að slíkar uppsagnir skili ekki raunverulegum sparnaði.
Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS, segir í samtali við visir.is að þó slík mál berist ekki oft á borð félagsins, sé þetta áhyggjuefni. Hann bendir á að oft sé skortur á fagmenntuðu starfsfólki í greininni, og að slíkar uppsagnir dragi ekki úr þeim vanda.
Óskar telur að þetta hvetji ekki til þess að fólk sæki sér menntun í faginu. Hann segir að félagið hafi lagt til breytingar á reglugerðum veitingastaða, þar sem krafist væri að faglært starfsfólk væri við störf, sérstaklega á fínni veitingastöðum.
Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um að efla iðn- og tækninám, hefur lítið orðið úr þessum tillögum. Óskar skilur ekki af hverju atvinnurekendur sjái ekki hag sinn í að hafa fagfólk í vinnu.
„Ég er ekki alveg að skilja af hverju atvinnurekendur sjá ekki hag sinn í því að vera með fagfólk í vinnu af því ég get ekki séð að það sé mikill sparnaður í því að segja upp fagfólki af því að fagfólk það yfirleitt eykur söluna og fagmennskun á stöðunum og annað slíkt, þannig maður hefði talið að það væri alltaf til bóta fyrir þá staði sem eru með fagmenn.“
Segir Óskar að lokum í samtali við visir.ir
-
Bocuse d´Or6 dagar síðan„Að gefast aldrei upp“, segir Sædís Hui í Bocuse d’Or teyminu
-
Frétt5 dagar síðanKrydd og Kavíar taka að sér allt að 1000 máltíðir á dag fyrir Reykjavíkurborg
-
Markaðurinn3 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Frétt2 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn6 dagar síðanRómantísk red velvet terta sem slær í gegn á konudaginn
-
Markaðurinn6 dagar síðanWolt fagnar uppbyggilegu samtali um nýsköpun og framtíð afhendinga í Reykjavík
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanLe Tribute Bransakvöld á Monkey’s & Kokteilbarnum á sunnudagskvöld
-
Markaðurinn7 dagar síðanKonudagurinn er á sunnudag






