Frétt
Starbucks dæmt til að greiða gríðarlegar bætur eftir brunaslys – greiðir 50 milljónir dala í bætur
Dómstóll í Kaliforníu hefur dæmt sendibílstjóra 50 milljónir dala sem samsvarar um 6,8 milljarða ísl. króna í bætur eftir að hann hlaut alvarlega bruna þegar heitt te frá Starbucks helltist yfir hann.
Atvikið átti sér stað árið 2018 þegar bílstjórinn, Tommy Piluyev, var að taka við pöntun í gegnum bílalúgu Starbucks í Roseville í Kaliforníu.
Í frétt á fréttavefnum The Guardian kemur fram að samkvæmt gögnum málsins losnaði lok kaffibollans af þegar starfsmaður afhenti drykkinn, sem leiddi til þess að logandi heitt te helltist yfir Piluyev og olli honum annars- og þriðja-stigs brunasárum á kvið, lærum og nára.
Í málsókninni kom fram að brunasárin hefðu haft langvarandi áhrif á heilsu Piluyev, bæði líkamlega og andlega.
Lögmenn Piluyev héldu því fram að Starbucks hefði sýnt gáleysi með því að afhenda teið í íláti sem ekki var tryggilega lokað. Dómnefnd komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið bæri ábyrgð á slysið og úthlutaði Piluyev 50 milljónum dala í skaðabætur.
Í yfirlýsingu frá Starbucks kom fram að fyrirtækið væri ósammála niðurstöðunni og íhugaði næstu skref varðandi mögulega áfrýjun. Fyrirtækið hélt því einnig fram að það legði áherslu á öryggi við afhendingu drykkja og fylgdi ströngum verklagsreglum.
Þessi dómur er sá nýjasti í röð mála þar sem matvælafyrirtæki hafa verið talin ábyrg fyrir meiðslum af völdum heitra drykkja. Með þessu hefur umræða um öryggi neytenda og ábyrgð fyrirtækja á þjónustu sinni enn og aftur verið vakin.
Mynd: úr safni
-
Frétt3 dagar síðanReyndir fagmenn skipa nýja stjórn Klúbbs Framreiðslumeistara
-
Markaðurinn4 dagar síðanGlæsileg sýning í Höllinni
-
Food & fun3 dagar síðanÞessir gestakokkar heimsækja Ísland í tilefni Food & Fun
-
Keppni6 dagar síðanHelga Signý sigraði í Barlady keppninni í annað sinn – Myndir
-
Food & fun1 dagur síðanFood & Fun 2026: Allar bókanir fara fram á Dineout í ár
-
Uppskriftir5 dagar síðanFullkominn smáréttur: Gratíneraður Búri með timían og hunangi sem bráðnar í munni
-
Markaðurinn2 dagar síðanHágæða þurrkaðir ávextir frá Secret Garden koma á íslenskan markað
-
Markaðurinn2 dagar síðanStökkir Kentucky þorskbitar með kartöflum og heimagerðri tartar sósu





