Frétt
176 milljarða króna skuldir setja FAT Brands í hættu á gjaldþroti
FAT Brands, sem á meðal annars veitingastaðina Fazoli’s, Round Table Pizza og Fatburger, glímir nú við alvarlega fjárhagslega stöðu eftir að fjármálastofnunin UMB Bank gaf út formlega tilkynningu um að skuldir félagsins, sem nema um 1,26 milljörðum Bandaríkjadala, eða um 176 milljörðum íslenskra króna, væru fallnar á gjalddaga. Þetta kemur fram í nýrri skráningu til bandaríska verðbréfaeftirlitsins SEC.
Fyrirtækið hafði áður fengið áminningar vegna vanskilanna, en það greiddi ekki gjaldfallna afborgun þann 27. október þar sem innstæður í innheimtureikningum dugðu ekki til. Í skjalinu segir jafnframt að FAT Brands og fjármögnunarfélög þess hafi ekki handbært fé til að standa straum af kröfunni. Félagið varar við því að þessi þróun eða hugsanleg nauðungarsala á veðum geti haft veruleg neikvæð áhrif á rekstur, fjárhag og lausafjárstöðu þess. Í versta falli gæti staðan leitt til gjaldþrotaleiða.
Veðin sem liggja að baki fjármögnuninni eru meðal annars vörumerkjaréttindi, reglulegar tekjur af vörumerkjum og aðrir rekstrartengdir eignastraumar innan samstæðunnar.
FAT Brands hefur árum saman fjármagnað vöxt sinn með stórum yfirtökum og notað tekjustoðir þeirra til að greiða niður skuldir. Á síðustu árum hefur félagið keypt meðal annars Johnny Rockets árið 2020 og Global Franchise Group, Twin Peaks, Fazoli’s og Native Grill & Wings árið 2021. Árið 2023 bættist Smokey Bones við og í janúar á þessu ári var Twin Peaks skilinn frá sem sjálfstæð eining.
Í minnisblaði sem að fréttasíðan BBC News hefur undir höndum segir Andy Wiederhorn forstjóri að fyrirtækið sé í viðræðum við skuldabréfaeigendur. Markmiðið sé að endurskipuleggja hluta efnahagsreikningsins á ábyrgan hátt, styrkja fjárhagslega stöðu félagsins og halda áfram að styðja við þróun vörumerkjanna til lengri tíma. Hann leggur áherslu á að daglegur rekstur haldi áfram óbreyttur og að franchise-aðilar fái áfram hefðbundinn stuðning í rekstri, markaðsmálum, birgðakeðju og tækni.
Wiederhorn sneri aftur í forstjórastól í september, rúmum tveimur árum eftir að hann steig til hliðar vegna alríkisrannsóknar á meintum svikum og skattsvikum. Bandaríska dómsmálaráðuneytið felldi niður öll sakamál gegn honum í júlí síðastliðnum. Mál hans hjá verðbréfaeftirlitinu er þó enn til meðferðar.
Í síðasta mánuði lögðu FAT Brands og hluthafar fyrirtækisins fram tillögu um 10 milljóna dollara, sem samsvarar um 1,4 milljörðum króna, í sameiginlega sátt vegna tveggja mála þar sem Wiederhorn og tengd félög hans, Fog Cutter Capital Group og Fog Cutter Holdings, voru sökuð um misnotkun fjármuna og sjálftöku.
Mynd: fatbrands.com
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Keppni5 klukkustundir síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Frétt2 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn13 klukkustundir síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir



