Markaðurinn
Mats töfraði fram flott brauðmeti og bakkelsi á vörukynningu Norlander – Zeelandia
Fyrr í vetur hélt Sælkeradreifing vörukynningu fyrir bakaraiðnaðinn í Hótel og Matvælaskólanum í MK, þar sem bakarameistarar, nemar og konditorar voru boðnir velkomnir.
Gunnar Þórarinsson bakari og sölumaður fyrir bakarí hjá Sælkeradreifingu sá um að koma þeim Mats Persson bakara í þróunardeild og Kent Inge Ohlsson markaðsstjóra hingað til lands og sýna okkur í ræðu og riti nýjungar frá Norlander Zeelandia sem Sælkeradreifing er með umboð fyrir.
Vörulína Norlander Zeelandia þekkja bakarar en þar á meðal eru brauðblöndur, bætiefni, krydd og kryddblöndur í brauð og kökur auk fyllinga í bakkelsi og vínarbauð auk ýmisskonar fræblöndur og formafeiti fyrir plötur og form. Mjög flott síða þar sem má fletta upp hráefni sem þeir hafa á boðstólnum auk þess uppskriftavefur úr þeirra hráefni bæði brauð og kökur sem dæmi hér.
Góð mæting var í sýnikennslueldhúsið á annari hæð í hótel og matvælaskólanum í MK, en eins og myndirnar bera með sér hafði Mats sem er bakari í tilraunabakarí Norlander-Zeelandia haft nóg að snúast þennan dag. Þvílíkt magn af flottu brauðmeti og bakkelsi sem hann hafði töfrað fram, virkilega flott vörulína hér á ferð sem vert er að skoða vel.
Látum myndir tala sínu máli auk smá myndskots sem undirritaður tók á staðnum.
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni2 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn7 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Markaðurinn2 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Markaðurinn9 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
























