Smári Valtýr Sæbjörnsson
Konditorsamband Íslands útbýr gluggamiða | Hér starfar konditor
Konditorsamband Íslands hefur ákveðið að ráðast í gerð gluggamiða, vegna fréttar á freisting.is (nú veitingageirinn.is) þar sem fjallað var um ólöglega notkun margra bakaría á konditori nafninu. Miðinn er auðþekkjanlegur rauður að lit með merki sambandsins og hvítum stöfum sem á stendur „Hér starfar konditor“ Hafa þau fyrirtæki sem eiga félagsmenn í konditorsambandinu nú þegar sett þessa límmiða í glugga verslanna sinna.
Rétt er að benda á þann lagaramma sem er um iðngreinarnar, og við öll eigum að virða:
Úrdráttur úr iðnaðarlögunum nr. 42/1978
2. gr. Enginn má reka iðnað í atvinnuskyni á Íslandi eða í íslenskri landhelgi, nema hann hafi til þess fengið leyfi lögum þessum samkvæmt.
8. gr. [Iðngreinar, sem reknar eru sem handiðnaður og löggiltar hafa verið í reglugerð1) iðnaðarráðherra, skulu ávallt reknar undir forstöðu meistara.
-Meistari skal bera ábyrgð á að öll vinna sé rétt og vel af hendi leyst.
-Rétt til iðnaðarstarfa í slíkum iðngreinum hafa meistarar, sveinar og nemendur í iðngreininni.
9. gr. Rétt til að kenna sig í starfsheiti sínu við löggilta iðngrein hafa þeir einir, er hafa sveinsbréf eða meistarabréf í iðngreininni.
10.gr Meistarabréf veitir meistara leyfi til að reka þá iðngrein, er meistarabréf hans tekur til.
15. gr. Það varðar sektum:
3. Ef maður rekur löggilta iðngrein, án þess að hafa meistara til forstöðu.
4. Ef maður kennir sig í starfsheiti sínu við löggilta iðngrein, án þess að hafa rétt til þess samkvæmt 9. gr.Eitt af frumskilyrðum fyrir inngöngu í konditorsambandið er, að meðlimir framvísi konditor sveinsbréfi eða meistarabréfi í kökugerð. Er afrit af bréfum þessum geymt hjá ritara sambandsins. Með þessu getum við ábyrgst að allir þeir sem eru meðlimir í konditorsambandi íslands eru fagmenntaðir, en greint er frá þessu á vefsíðu Konditorsambandi Íslands.
Hægt er að niðurhala merkið á meðfylgjandi vefslóð:
[wpdm_file id=10]
-
Markaðurinn5 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn6 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt2 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“



