Smári Valtýr Sæbjörnsson
Einstök krabbaveisla vekur lukku
Veitingahúsið Vitinn í Sandgerði hefur laðað að sér fjölmarga gesti í sumar og þá aðallega vegna krabbaveislunnar sem boðið er upp á á kvöldin. Vitinn býður upp á grjótkrabba sem geymdur er í húsnæði Þekkingarseturs Suðurnesja, sem er staðsett í næsta húsi við veitingastaðinn. Þar er krabbanum haldið lifandi þangað til hann er eldaður og hefur hann slegið í gegn hjá matargestum sem einnig eru ánægðir með humar, skelfisk og aðrar sjávarafurðir sem í boði er. Brynhildur Kristjánsdóttir, annar eigandi Vitans segir áform um að grafa eigin borholu á lóðinni fyrir sjó til þess að þau geti sjálf hýst krabbann.
„Í rauninni hefur verið klikkað að gera og margföld aukning hjá okkur frá því í fyrra á sama tímabili. Íslendingar hafa verið duglegri að koma en áður þar sem við finnum að Reykjanesið er farið að draga að sér íslenska ferðalanga,“ segir Brynhildur. Erlendir ferðamenn eru samt sem áður stærsti hluti gesta og þá er mikið um hópa sem koma á vegum ferðaskrifstofu. „Vinsælt er hjá ferðamönnunum að eiga síðustu kvöldmáltíðina á Íslandi hjá okkur, margir þeirra eiga miðnæturflug heim og því hentar þetta vel.“ að því er fram kemur á vef Víkurfrétta vf.is
Á Vitanum er einnig boðið upp á hádegishlaðborð þar sem íslenskur heimilismatur er í boði. Nokkrir réttir eru í borðinu ásamt súpu og salatbar.
Staðurinn er opinn yfir allan daginn á sumrin en þá er hægt að kíkja við í kaffi og heimagerðar kökur. Vitinn hefur ekki verið opinn á kvöldin að vetri til en nú stendur til að breyta því vegna velgengni í sumar. „Við stefnum á að hafa opið á kvöldin í vetur, við sjáum hvernig það gengur en ég efast um að við náum að hafa opið í janúar. Vonandi verður það eini mánuðurinn sem við þurfum að loka á kvöldin,“ segir Brynhildur að lokum.
Greint frá á vf.is
Myndir: Smári
Twitter og Instagram: #veitingageirinn
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun17 klukkustundir síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Frétt7 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn4 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Keppni3 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Markaðurinn2 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð




