Markaðurinn
Viltu reka kaffihús í hjarta Miðborgarinnar
Rekstur kaffihúss í Kolaportinu:
Við óskum eftir rekstraraðila til að reka Kaffihús í Kolaportinu
Möguleiki á bakarí, ísbúð, viðburðahaldi
Opið alla daga vikunnar
Stærð allt að 190 fermetrar
Leiga: Veltutengd leiga
Hafið samband á netfangið: [email protected]
Kaffihús / bakarí / ísbúð í Kolaportinu
Í fjölda ára hefur verið starfrækt kaffihús, eða kaffistofa í Kolaportinu. Með tilkomu nýrra rekstraraðila viljum við efla þessa starfsemi enn frekar og styrkja Kolaportið í sessi sem eitt skemmtilegasta og mest lifandi kaffihús í miðborg Reykjavíkur.
Gert er ráð fyrir að kaffihúsið verði um 40 fermetrar, með um 150 fermetra setusvæði. Þar gefst möguleiki á sætum fyrir yfir 100 manns, sem skapar rými fyrir bæði notalegar stundir og líflega stemningu með viðburðarhaldi.
Unnið er að hönnun á stóru og spennandi barnahorni (um 30 fermetrar) sem mun liggja að kaffihúsinu og gera það sérstaklega aðlaðandi fyrir fjölskyldur.
Kaffihúsið verður aðgengilegt bæði innan úr Kolaportinu og er einnig með sérinngangi frá Geirsgötu, sem eykur sýnileika og aðgengi.
Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi, svo sem að vera með bakarí, kaffihús, ísbúð og allt annað sem skapar líf í Kolaportinu.
Leiga er sanngjörn og mögulegt er að hafa kaffihúsið opið alla daga vikunnar.
Nýir tímar í Kolaportinu
Nýir rekstraraðilar tóku við Kolaportinu síðasta haust og með þeim hófst nýr kafli í sögu þessa einstaka markaðar. Nýir rekstraraðilar, þeir Róbert Aron og Einar Örn, hafa meðal annars rekið Götubitahátíðina í Reykjavík og City Food Hall mathöllina í Stokkhólmi og hafa víðtæka og langa þekkingu af rekstri og veitingabransanum.
Róbert og Einar koma með ferska sýn á hvernig Kolaportið mun þróast og blómstra á komandi árum.
Fyrir jól 2025 var haldinn afar vel heppnaður jólamarkaður, Jólaportið, þar sem fjöldi nýrra söluaðila mættu í Kolaportið og gestir streymdu að í mun meira mæli en áður. Stemningin var lifandi, fjölbreytt og hugguleg.
Fram undan eru frekari breytingar sem munu gera Kolaportið að enn meira spennandi og líflegri áfangastað, bæði fyrir Íslendinga og ferðamenn sem vilja upplifa eitthvað ekta, óvænt og skemmtilegt í hjarta Reykjavíkur.
Hafið samband á netfangið: [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn5 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Keppni4 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn3 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Markaðurinn4 dagar síðanHefur þú smakkað svart pepperoni?
-
Markaðurinn6 dagar síðanÞorskur í sparifötunum, stökkur ostahjúpur og sítrónukeimur





