Bocuse d´Or
Viktor Örn Andrésson verður næsti Bocuse d´Or kandídat
Viktor Örn Andrésson, Matreiðslumaður ársins 2013 og Matreiðslumaður Norðurlanda 2014, hefur nú hafið undirbúning fyrir þátttöku í Bocuse d‘Or, sem er oft kölluð hin eina sanna heimsmeistarakeppni í matreiðslu. Hann hefur nú sagt starfi sínu sem yfirmatreiðslumaður Lava Restaurant í Bláa lóninu lausu til að einbeita sér að verkefninu, að því er fram kemur á vef Viðskiptablaðsins.
Keppnin Bocuse d‘Or hefur verið haldin síðan 1987 og komast færri þjóðir að en vilja. Tuttugu og fjórar þjóðir fá keppnisrétt eftir að hafa unnið forkeppni í sinni heimsálfu, og fimm efstu sætin í sjálfri keppninni tryggja þeim þjóðum sjálfkrafa keppnisrétt næst.
Íslendingar hafa tekið þátt í Bocuse D‘Or undanfarin fimm skipti, frá 1999, með vægast sagt glæsilegum árangri. Við höfum alltaf verið í topp níu af 24 þjóðum á heimsmeistaramótinu og hæst náð þriðja sæti. Tölfræðin sýnir að við erum nú meðal sex bestu þjóða heims á sviði matreiðslu. Það er mér mikill heiður að fá að taka þátt í svona stórri og mikilvægri keppni og mjög gaman að fá að keppa við stóru strákana í faginu. Það er eitthvað sem maður býr að alla ævi,
segir Viktor í samtali við Viðskiptablaðið fullur tilhlökkunar.
Nú eru sjö mánuðir í keppnina og tíminn verður nýttur vel. Mitt markmið er að ná topp fimm í Evrópukeppninni í Búdapest í maí 2016, og síðan að lenda á palli í heimsmeistarakeppninni í Lyon í janúar 2017. Þetta leggst gríðarlega vel í mig.
Viktor Örn Andrésson er í viðtali í Eftir vinnu, fylgiriti Viðskiptablaðsins, sem kom út nú í vikunni.
Mynd: aðsend
-
Frétt6 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni7 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Keppni7 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt2 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or14 klukkustundir síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Markaðurinn4 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir






