Markaðurinn
Við óskum eftir matreiðslunemum á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar
Langar þig að verða hluti af frábæru teymi?
Við hjá Íslandshótelum erum ávallt í leit að metnaðarfullu og áhugasömu starfsfólki sem vill taka þátt í að gera okkur að fyrsta valkosti þegar kemur að hótelgistingu og matarupplifun á Íslandi.
Metnaður í faglegri kennslu
Stjórnendur okkar leggja mikla áherslu á að þróa og styðja næstu kynslóð fagfólks í veitingabransanum. Með því að ganga til liðs við okkur færðu tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu og færni í skapandi og faglegu umhverfi.
Vertu hluti af fjölbreyttu og kraftmiklu teymi
Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fólks, og við erum alltaf að leita að drífandi og þjónustulunduðum einstaklingum sem vilja vaxa og dafna í sínu fagi.
Sæktu um á einfaldan hátt
Þú þarft einfaldlega að fylla út umsókn og við höfum samband. Við hvetjum þig til að senda inn ferilskrá og fylgibréf (cover letter) með umsókninni.
Þegar umsókn hefur verið send fær umsækjandi staðfestingu í tölvupósti. Umsóknir eru geymdar í sex mánuði og meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Hótel Reykjavik Saga er einstaklega vel staðsett í hjarta miðbæjarins, nokkrum skrefum frá Tjörninni, Dómkirkjunni, listasöfnum og fjölmörgum verslunum og veitingastöðum.
Á hótelinu er einnig að finna veitingastaðinn Fröken Reykjavik kitchen & bar. Lögð er áhersla á bestu og ferskustu staðbundnu hráefni sem fáanleg eru en leikið er með bragð og áferð. Á veitingastaðnum sem hannaður var með ívafi af Art Deco stíl er líflegur bar, vínherbergi, vetrargarður og opið eldhús þar sem þú getur fylgst með kokkunum elda matinn.
Við hlökkum til að heyra frá þér
-
Keppni7 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt3 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“




