Vín, drykkir og keppni
Verðlaunavín – Gyllta Glasið 2022 – Seinni partur
Nú er nýlokin keppnin um Gyllta Glasið 2022 sem var er undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Verðflokkur vína í keppni í ár er frá 2.490 kr til 4.000 kr og völdu vínbirgjar vínin til í þessa keppni. Í þessum seinni parti voru vín frá norður við miðbaug tekinn fyrir.
Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Grand Hótel 6. nóvember sl. og eigum við í Vínþjónasamtökunum þeirra allra bestu þakkir fyrir aðstoðina.
Sjá einnig: Verðlaunavín – Gyllta Glasið 2022 – Fyrri partur
Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E H Hough margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna ásamt sérstakri aðstoð frá vel völdu fagfólki og eiga þau þakkir fyrir að standa að stærstu blindmökkum sem fram fer á Íslandi ár hvert.
5 hvítvín og 10 rauðvín hlutu Gyllta glasið 2022 samkvæmt hlutföllum sem skiluðu sér. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.
Minni birgja á að panta miða hjá Leturprent.
Verðlaunavínin
Hvítvín:
Baron de Ley ,,Tres Vinas“ Blanco Reserva 2019, 3.199 kr
Dr Loosen Erdener Treppchen Riesling Kabinett 2021, 2.899 kr
Gerard Bertrand An 1130-Cite de Carcassonne Chardonnay 2021. 2.499 kr
Louis Latour Bourgogne Chardonnay 2021. 3.199 kr
J.Drouhin Laforet Chardonnay 2019. 3.390 kr
Rauðvín:
Gérard Bertrand An 560 Tautavel 2020, 2.999 kr
Mommessin Beaujolais-Villages 2021, 3.199 kr
Tommasi Ripasso 2019, 3.499 kr
Baron de Ley Finca Monasterio 2019. 3.999 kr
Marques de Riscal Reserva 2018. 3.990 kr
Cune Gran Reserva 2016. 3.799 kr
Zenato Alanera 2018. 2.490 kr
Villa Wolf Pinot Noir 2020. 2.799 kr
Francois Martenot Pinot Noir 2021. 3.299 kr
Ogier Saint Joseph 2018. 3.999 kr
Vínþjónasamtökin vilja þakka sérstaklega öllum dómurum og birgjum fyrir frábæra þáttöku og óskum við sigurvegurum til hamingju.
f.h. Vínþjónasamtaka Íslands
Tolli

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Kokkur á miðunum: Guðmundur H. Helgason eldar fyrir áhöfn Breka VE – Fylgist með á Snapchat: Veitingageirinn
-
Keppni4 dagar síðan
Frábær árangur í Global Chef Challenge – Hinrik Örn og Andrés tryggja sér sæti í Global Chef Challenge 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Bolla sem kemur skemmtilega á óvart
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Góður matur, góð viðskipti: Þekktir veitingastaðir með gríðarlega veltu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Mötuneyti í nýju húsnæði Landsbankans fær Svansvottun
-
Keppni1 dagur síðan
Landslið íslenskra matreiðslumanna fær kraftmikinn stuðning frá Íslandshótelum
-
Keppni4 dagar síðan
Verður þú hraðasti og snyrtilegasti barþjónninn?
-
Frétt10 klukkustundir síðan
Gjaldþrot Hooters: Eftir 40 ár á toppnum er framtíðin óviss