Starfsmannavelta
Valli flatbaka ekki lengur Valli flatbaka
Valgeir Gunnlaugsson betur þekktur sem Valli flatbaka hefur selt pizzastaðinn Íslensku Flatbökuna. Nýir eigendur munu taka við rekstrinum núna í lok mars en það eru athafna- og veitingamennirnir Páll Ágúst og Hafþór Rúnar.
Þeir eru nú ekki ókunnugir pizzabransanum en saman reka þeir pizza matarvagninn PopUp Pizza sem hefur verið að gera góða hluti í matarvagna menningunni.
Valli stofnaði Íslensku Flatbökuna í febrúar árið 2015 og fagnaði því 8 ára starfsafmæli nú á dögunum. Ásamt því að hafa rekið flatbökuna þá er Valli einn af eigendum Indican ásamt Páli óskari sem steig sín fyrstu skref í veitingarbransann nú á dögunum.
Sjá einnig: Páll Óskar opnar veitingastað
Aðspurður sagði Valli að ástæða sölunnar væri;
“Flatbakan er barnið mitt sem ég hef nært og gefið alla mína athygli og orku síðastliðin 8 ár. Það hefur gengið vel og ég er virkilega þakklátur fyrir það. En uppá síðkastið hef ég þurft að sinna hinu barninu mínu sem er indican og öll mín orka og athygli fer í það núna ásamt öðrum verkefnum.
Mér fannst því vera kominn tími á að rétta flatböku kyndilinn áfram. Mér þykir virkilega vænt um Flatbökuna og því skipti það mig miklu máli að kyndillinn færi áfram í réttar hendur. Ég er búinn að þekkja Pál í mörg ár, hann vann fyrir mig á flatbökunni á sínum tíma og hefur verið spenntur í langan tíma að koma að rekstri flatbökunnar.
Ég er sannfærður að Páll og Hafþór muni koma sterkir inn og halda áfram því góða starfi sem ég og mitt frábæra starfsfólk höfum gert hingað til.”
Verða einhverjar breytingar með eigendaskiptunum ?
“Það verða auðvitað einhverjar áherslu breytingar sem fylgja nýjum eigendum og allar af því góða. Páll og Hafþór ætla sér að byggja áfram á traustum grunni. Ég myndi aldrei láta Flatbökuna frá mér nema vita að hún væri í góðum og traustum höndum.”
Hvernig er tilfinningin að vera ekki lengur Valli flatbaka ?
“Ég held ég heiti Valli flatbaka í símaskránni hjá 80% af fólki sem ég þekki. Auðvitað er þetta skrítin tilfinning. Þetta er nú ekki mikil breyting, Valli flatbaka breytist í Valli indican og í staðinn kemur Palli flatbaka”
Segir Valli léttur í lund.
Valli er samt ekki alveg búinn að leggja pizzaspaðann á hilluna en hann ætlar að standa síðustu vaktina á Flatbökunni sunnudaginn 19. mars.
„já ég ætla sjálfur að standa síðustu vaktina. Mig langar að kveðja með stæl og ætla að bjóða allar pizzur á 2500 kr og láta 500 kr af hverri seldri pizzu renna til góðgerðamála.
Ég vonast til að sjá sem flesta af okkar æðislegu viðskiptavinum sem hafa verslað við okkur síðustu ár. Ég lofa að gráta ekki of mikið ofaní pizzurnar ykkar.”
Sagði Valli að lokum.
Myndir: aðsendar

-
Markaðurinn3 dagar síðan
Snjöll lausn fyrir veitingastaði – Heinz EazySauce tryggir rétta skammtinn
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýr veitingastaður í Laugarási: Gísli Matthías opnar Ylju í Laugarás Lagoon
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Noma snýr heim frá Japan – Tímabil hafsins komið í fullan gang
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Sælkera upplifun í Hörpu: NOMA, grálúða og matarupplifun í hæsta gæðaflokki
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Nýtt útspil fyrir bolludaginn – Kanilsnúða- og bolluveisla í einum bita
-
Markaðurinn3 dagar síðan
DreiDoppel kökunámskeið fyrir bakara og veitingafólk
-
Frétt2 dagar síðan
Viðvörun til neytenda: Framleiðslugalli í baunasúpugrunni
-
Frétt3 dagar síðan
Viðvörun: Örverumengun í melónufræjum – Neytendur beðnir um að gæta varúðar