Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Unnur ráðin sem yfirkokkur á nýjum veitingastað í Kaupmannahöfn

Birting:

þann

Veitingastaðurinn Skade - KaupmannahöfnNýr veitingastaður opnaði nú á dögunum í Kaupmannahöfn sem ber nafnið Skade og er staðsettur við Rosengården 12.

Hópurinn að baki veitingastaðarins, eigendur og yfirkokkar eru heyrnalausir.  Eigendurnir eru fjórir drengir, en þeir fengu til sín verðlauna matreiðslumanninn Unni Pétursdóttur og matreiðslumanninn Magnus Madsen.

Veitingastaðurinn er lítill og huggulegur sem tekur um 35 matargesti í senn og byggist matseðillinn á skandinavískum réttum.

Á matseðlinum má m.a. finna svínabringur, danskan smokkfisk auk þess sem staðurinn býður upp á fjölbreytt úrval af bjór og einnig er á boðstólnun hvönn-brennivín frá Íslandi.

Víðsvegar um allan heim er hægt að finna táknmálsveitingastaði, en eigendur Skade eru ekki að markaðssetja veitingastaðinn sem slíkan.

Nafn veitingastaðarins var valið af prófessor í sagnfræði en nafnið Skade er heiti á gyðju veiðimannsins sem vísar til sjálfstæði veitingastaðarins og hann verður rekinn af sömu hugsun og gyðja.

https://www.instagram.com/p/BUCDVpIgmjH/

“Að láta ekkert stöðva sig” og að vera döff á ekki að stöðva fólk í að gera það sem það vill.

Heimasíða Skade

Instagram/Skade

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið