Keppni
Þessir 10 komust áfram í World Class barþjónakeppninni
World Class keppnin er haldin í fyrsta sinn á Íslandi en þetta er ein stærsta og virtasta barþjónakeppni heims og hefur verið haldin síðan árið 2009. World Class er árleg keppni sem DIAGEO RESERVE heldur og snýst um að finna bestu barþjóna heims en í ár eru keppendur frá yfir 60 löndum.
Keppnin snýst um upplifanir og ástríðu á drykkjarmenningu og kokteilum ásamt því að finna næstu kynslóð barþjóna og nýjustu strauma í “mixology” eða tækni blöndunar.
World Class snýst um að efla samfélag barþjóna og er einungis keppt í lúxusvörum og með hágæða hráefni. Keppnin snýst um samtal við bestu barþjóna heims yfir árið þar sem þeir deila mánaðarlega World Class kokteilum, þekkingu sinni og ástríðu. Þjálfarar og gestabarþjónar eru annað hvort fyrrum sigurvegarar eða frá toppsætum fyrri ára.
DIAGEO RESERVE eru eðalvörur DIAGEO s.s hin margverðlaunuðu Johnnie Walker Blue Label, Gold og Platinum Label, Ketel One, Ron Zacapa, Don Julio, Ciroc og Tanqueray no. Ten.
Í keppninni byrjuðu 32 barþjónar og hér á meðfylgjandi mynd má sjá topp 10 sem komust áfram og munu etja kappi þann 8. júní og einn þeirra fer í lokakeppnina í MIAMI í september.
Fylgist með á facebook síðu World Class
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn4 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt7 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Keppni13 klukkustundir síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Frétt6 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur



