Markaðurinn
Sushi í nýjum búningi: Ofnbakað, rjómakennt og ómótstæðilegt
Ef þú ert sushi aðdáandi eins og ég þá er þetta eitthvað sem þú munt elska! Rétturinn er í sjálfu sér ekki flókinn og hægt er að undirbúa hann með fyrirvara ef þig langar að bjóða upp á hann t.d. í matarboði eða veislu.
Í botninn á eldföstu móti fer gott lag af sushi hrísgrjónum, þar ofan á fara rifin nori blöð, því næst blanda af risarækjum og laxi með hreinum rjómaosti, japönsku majónesi og sriracha sósu. Svo er þetta toppað með sesamfræjum, vorlauk og meira af japanska majónesinu og sriracha.
Dásamlegt að bera fram með niðurklipptum nori blöðum, gúrkubitum og avocado.
Innihald:
2 bollar sushi hrísgrjón
2 msk. hrísgrjónaedik
1 msk. sykur
1⁄2 tsk. salt
300 g risarækjur, soðnar
300 g eldaður lax
120 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
50 g japanskt majónes
1 1⁄2 msk. sriracha sósa
1 pk. nori blöð
svört sesamfræ
wasabi sesamfræ
saxaður vorlaukur
sojasósa
avocado, magn eftir smekk
agúrka
Aðferð:
Skref 1
- Byrjið á því að elda sushi hrísgrjónin: Skolið hrísgrjónin vel og hellið vatninu af. Endurtakið þar til vatnið verður glært.
- Setjið svo hrísgrjónin í pott með köldu vatni og látið liggja í bleyti í 30 mín. Hellið þá vatninu af og setjið tvo bolla af vatni í pottinn.
- Setjið lokið á og kveikið undir. Leyfið suðunni að koma upp og lækkið þá hitann strax niður í lægsta hita. Varist að taka lokið af á meðan þau sjóða.
- Sjóðið grjónin í 15 mín. og slökkvið svo undir og leyfið pottinum að standa óhreyfðum með lokinu á í 10 mín.
Skref 2
- Hitið ofninn í 200°C með blæstri.
- Penslið laxinn með örlítilli olíu og saltið og piprið.
- Bakið laxinn í ofninum í ca. 15 mín. Einnig er gott að nota airfryer og styttið þá eldunartímann örlítið.
- Saxið rækjurnar mjög smátt og setjið í skál.
- Takið roðið af laxinum og bætið út í skálina með rækjunum.
- Setjið rjómaost, japanskt majónes og sriracha sósu saman við og blandið vel saman.
Skref 3
- Setjið hrísgrjónin í eldfast mót og þjappið vel.
- Takið þrjú nori blöð og kremjið og rífið smátt og dreifið yfir hrísgrjónin
- Smyrjið rækju- og laxablöndunni yfir hrísgrjónin og nori blöðin og sléttið úr.
- Bakið í 10 mín. og setjið svo á grillstillinguna í ofninum og bakið áfram í 5 mínútur.
Skref 4
- Sprautið japönsku majónesi yfir heita bökuna ásamt sriracha sósu.
- Stráið þá svörtum sesamfræjum, wasabi sesamfræjum og söxuðum vorlauk yfir.
- Gott er að klippa restina af noriblöðunum í fernt og bera fram með sushi-inu ásamt avocado sneiðum og gúrkubitum.
Höfundur: Valgerður Gréta Gröndal – gottimatinn.is
-
Frétt3 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Frétt6 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni3 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni3 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn4 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars







