Frétt
Stjórnendur Fiskidagsins Mikla ganga skrefinu lengra í flokkun á rusli

Frá undirritun.
F.v. Elías Björnsson frá Sæplast, Pétur Blöndal frá Samál, Helga Pálsson frá Gámaþjónustu Norðurlands og Þorsteinn Már Aðalsteinsson frá Fiskideginum mikla.
Í gær miðvikudaginn 4. júlí undirrituðu fulltrúar fjögurra aðila samvinnusamning sem snýr að flokkun á rusli sem til fellur á Fiskideginum mikla. Undirritunin fór fram í brekkunni við hátíðarsviðið í miðbæ Dalvíkur.
Undanfarið hafa stjórnendur Fiskidagsins mikla unnið að því að skipuleggja flokkun á rusli sem fellur til á fjölskylduhátíðinni Fiskidagurinn mikli. Í ár verður skrefið tekið lengra með samvinnu fjögurra aðila, Samáls samtaka álframleiðenda, Sæplasts, Gámaþjónustu norðurlands og Fiskidagsins mikla. Stefnt er að því að flokka álpappír, plast og almennt sorp ásamt því að dósir og plastflöskur eru flokkaðar af Björgunarsveitarinni á Dalvík og rennur ágóðinn af þeirri söfnun óskiptur til sveitarinnar. Næstu árin stefnir hugur þessara aðila til enn meiri flokkun ar og að fá fleiri aðila að borðinu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Sæplast setur upp litakerfi og merkingar á Sæplastkör sem verða víða á hátíðarsvæðinu og vonumst við til þess að gestir kynni sér merkingar og leggi verkefninu lið. Gámaþjónusta norðurlands sér að venju um að taka það sem flokkað er og koma á rétta staði.
Samál sem eru nýir í hópi aðalstyrktaraðila Fiskidagsins mikla leggja verkefninu lið og til gamans má geta að Fiskidagurinn mikli hefur notað um 2,6 tonn af álpappír í þessi 17 ár.
Allt frá upphafi hefur Fiskidagurinn mikli lagt mikla áherslu á að umgengni sé góð. Oft hefur verið rætt um að þar sem að allt er frítt á Fiskideginum mikla sé aðgöngumiðinn að gestir gangi vel um og sýni almennt góða hegðun. Við mælumst til að gestir leggi verkefninu lið með því að nota eins mikið og hægt er sömu diska, súpuglös og fleira.
Einnig notuðu fulltrúar Samáls, Appelsín og Sæplast og Fiskidagsins mikla tækifærið og skrifuðu undir styrktarsamning þessara aðila fyrir Fiskidaginn mikla 2018. Þessir þrír aðilar eru allir í góðum hópi aðalstyrktaraðila. Sæplast hfur verið mikill og góðu bakhjarl allt frá upphafi og ávallt í hópi aðalstyrktaraðila. Samál og Appelsín eru nýjir í hópnum og bjóðum við þá sérstaklega velkomna. Allir drykkir á hátíðinni í ár verða í boði Egils Appelsín.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanGestir stjórna gröfum á meðan þeir borða og drekka






