Freisting
Snefilefnin fundin sem gera ólívuolíu heilsusamlega
Spænskir vísindamenn segjast hafa borið kennsl á snefilefnin í ólívuolíu sem gera að verkum að hún er mjög holl fyrir hjartað. Um er að ræða samefni er kallast fenól, en þau eru bólgu-, æðastíflu- og þráavari. Áhrifa efnanna gætir mest í jómfrú- og frumjómfrúolíu, vegna þess að þar er mest af þeim, að því er fram kemur í Journal of the American College of Cardiology.
Frá þessu greinir fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC.
Vísindamennirnir báru saman áhrifin af neyslu fenólríkrar ólívuolíu og olíu sem megnið af fenólinu hafði verið numið úr. Var tilraunin gerð á 21 sjálfboðaliða með hátt blóðfituhlutfall, sem er þekktur áhættuþáttur hjartaáfalla.
Til að athuga áhrif mataræðis á æðakerfið mældu vísindamennirnir getu æðanna í sjálfboðaliðunum til að bregðast við snöggum breytingum á blóðflæði í fingrunum. Var þetta gert með því að blása upp smeyginn á blóðþrýstingsmæli og hleypa síðan loftinu úr honum. Hæg viðbrögð æðakerfisins við prófun sem þessari eru talin merki um hættu á hjarta- og æðasjúkdómum og geta einnig komið fram rétt eftir neyslu fituríks matar.
Viðbrögð æðanna jukust fyrstu klukkustundirnar eftir neyslu fenólríks matar. Þessi viðbragðaaukning tengdist auknu magni nituroxíðs, sem sér um að víkka æðar, og minna sýringarálagi, en með því raskast efnaskiptajafnvægið í frumum þegar þær komast í snertingu við efni sem leiða til uppsöfnunar sindurefna er geta skemmt frumurnar.
Dr Francisco Perez Jiminez, við Reina Sofia háskólasjúkrahúsið í Cordoba, einn höfunda rannsóknarinnar, sagði: Við teljum að í ljósi niðurstaðnanna megi rekja sjáanlega heilsubót til minnkunnar sýringarálags og aukins magns nituroxíðs.
Greint frá á mbl.is
-
Markaðurinn3 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanKynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
-
Markaðurinn6 dagar síðanSparaðu með júlítilboðum Nathan
-
Markaðurinn5 dagar síðanGlæsileg tilboð á lamba-, grísa- og kjúklingavörum í júlí
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Markaðurinn4 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Frétt4 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð


