Vertu memm

Uppskriftir

Smurbrauð fyrir sælkera – Nautatartar og smurbrauð með reyktri bleikju

Birting:

þann

Smurbrauð fyrir sælkera - Nautatartar og smurbrauð með reyktri bleikju

Smørrebrød“ er brauð, yfirleitt rúgbrauð, sem hefur verið smurt með smjöri. Smurbrauð getur verið aðalréttur, hluti máltíðar eða smáréttur milli mála og er mikilvægur þáttur í danskri matargerð.

Við Íslendingar höfum fengið ýmislegt gott í arf frá frændum okkar en hér á landi er smurbrauðshefðin ágætlega þekkt. Smurbrauð varð til vegna þarfar til að neyta matar utan heimilis. Frá fornu fari þurftu smalar, bændur, veiðimenn og aðrir sem voru að vinnu langt frá heimilinu að taka með sér nesti og þá var handhægt að hafa með sér brauð og ýmiss konar álegg.

Ekki er neitt sér-danskt við slíkt nesti og það var ekki fyrr en í lok 19. öld að danskt smurbrauð varð til í þeirri sér-dönsku mynd sem það hefur í dag, þar sem áleggi er staflað á smurðar brauðsneiðar.

Nautatartar með graslauk, kapers og spánarkerfli

350 g nautalundir eða fitulítill lærvöðvi
2 stk. skalotlaukar
1 msk. kapers
½ pottur graslaukur
Extra virgin ólífuolía
Salt og svartur pipar
Skreytt með nýjum spánarkerfli og graslauksblómum
Graslauks majónes
2 eggjarauður
1 tsk. dijon sinnep
200 ml graslauksbætt repjuolía
2 msk. edik eða sítrónusafi

Smurbrauð með reyktri bleikju, grænkáli og rjómaosti

4 sneiðar rúgbrauð
100 g rjómaostur
200 g reykt bleikja
½ stk. rauðlaukur, smátt saxaður
10 stk. kapers
Svartur pipar
Grænkál eða rabarbari
100 ml repjuolía
2 tsk. gott edik

Snyrtu nautalundina og skerðu hana í fína teninga.  Saxaðu skalotlaukinn, graslaukinn og kapersið fínt.  Blandaðu öllu hráefninu saman í skál, bætið í olíu,  salti og pipar og dijon sinnepi. Sprautið majónesið ofan á réttinn. Skerið brauðið í sneiðar. Setjið rjómaostinn í matvinnsluvél og þeytið hann lítillega (eða notið handþeytara) og setjið svo duglega af honum á brauðið.

Sneiðið bleikjuna þunnt og leggið ofan á rjómaostinn. Setjið rauðlauk og kapers yfir og myljið svo svartan pipar ofan á. Veltið grænkáli upp úr smá olíu og ediki og leggið ofan á. Saltið og piprið eftir smekk.  Í stað grænkálsins er líka er hægt að kryddleggja ferska borða af nýjum rabarbara. Þá er gott að setja ögn af hunangi til að jafna sýruna í rabarbaranum.

Bjarni Gunnar Kristinsson

Bjarni Gunnar Kristinsson

Mynd og höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumaður

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið