Markaðurinn
Smákökusamkeppni Kornax 2018
Smákökusamkeppni KORNAX hefur verið haldin í aðdraganda jólanna síðastliðin ár. Þá keppa áhugabakarar um bestu jólasmákökuna sem inniheldur bæði KORNAX hveiti og vöru/vörur frá Nóa Síríusi og hljóta vinningshafarnir glæsileg verðlaun.
Vinningshafinn hlýtur m.a. glæsilega KitchenAid hrærivél
Keppnin fer svona fram:
Kökunum skal skilað inn eigi síðar en þriðjudaginn 13. nóvember 2018 fyrir kl. 16:00 á skrifstofu KORNAX að Brúarvogi 1-3, 104 Reykjavík. Að sjálfsögðu má senda smákökurnar með pósti eða koma með þær fyrr.
Dæmt verður eftir bragði, áferð, lögun og lit og hvort sýnishorn séu einsleit og vel unnin. Senda skal u.þ.b. 15 smákökur í gegnsæju íláti, krukku eða plastpoka merktum með dulnefni. Miða skal við að smákökurnar séu ekki mikið stærri en 5 cm í þvermál. Rétt nafn, símanúmer og uppskrift skal látin fylgja með í lokuðu umslagi merktu sama dulnefni.
1. verðlaun: KitchenAid hrærivél frá Raflandi, Smellur frá Hótel Selfossi, innifalið er 2ja manna herbergi ásamt morgunverði auk þriggja rétta kvöldverðar að hætti hússins, gjafabréf að upphæð 40.000 kr frá Nettó, KORNAX hveiti í baksturinn, lífræn egg frá Nesbú-eggjum og glæsilegur gjafapoki frá Nóa Síríusi.
2. verðlaun: KOL Skólavörðustíg smakkmatseðill fyrir tvo, gjafabréf að upphæð kr. 30.000 frá Nettó, glæsilegt og vandað 5 stykkja KitchenAid bökunarsett frá Raflandi, KORNAX hveiti í baksturinn, lífræn egg frá Nesbú-eggjum og glæsilegur gjafapoki frá Nóa Síríusi.
3. verðlaun: gjafabréf að upphæð kr. 20.000 frá Nettó, KORNAX hveiti í baksturinn, lífræn egg frá Nesbú-eggjum og glæsilegur gjafapoki frá Nóa Síríusi.
Dómarar:
- Albert Eiríksson matarbloggari og lífsnautnaséntilmaður
- Auðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri Nói Siríus
- Sylvía Haukdal kökugerðarmeistari og bloggari á ynjur.is
- Ásta Björk Styrmisdóttir fulltrúi KORNAX
Fyrirspurnir varðandi keppnina er hægt að senda á [email protected] og við aðstoðum með glöðu geði.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn7 dagar síðanOstur sem lyktar eins og „sviti og eftirsjá“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju




