Frétt
Reyndir fagmenn skipa nýja stjórn Klúbbs Framreiðslumeistara
Aðalfundur Klúbbs Framreiðslumeistara fór fram klukkan 10:00 í Matvælaskólanum í gærmorgun, mánudaginn 9. febrúar 2026, og stóð í um 40 mínútur. Á fundinum var stjórn klúbbsins formlega kosin og kynnt.
Til formanns var kosinn Erlingur Gunnarsson og Oddný Ingólfsdóttir gegnir embætti varaformanns. Aðrir stjórnarmenn eru Trausti Víglundsson, Finnur Gauti Vilhelmsson, sem jafnframt er ritari, og Peter Hansen, gjaldkeri. Varamenn stjórnar eru Lind Ólafsdóttir og Gyða Dröfn Víðisdóttir.
Á fundinum voru einnig kynnt markmið klúbbsins, sem miða að því að efla samstarf, styrkja faglega umræðu og stuðla að framþróun innan geirans. Aðalfundurinn markaði formlega endurkomu Klúbbs Framreiðslumeistara undir nýrri stjórn, sem hlakkar til að takast á við komandi verkefni og fagnar allri þátttöku þeirra sem hafa áhuga á að leggja klúbbnum lið.
Áhugasamir geta haft samband við Oddnýju í gegnum netfangið [email protected].
Stjórn og varamenn
Erlingur Gunnarsson – Formaður
Framreiðslumeistari, menntaður úr Matvælaskólanum í Kópavogi, Butler frá The International Butler Academy í Hollandi, diplómu hafi frá César Ritz í Hótel og veitingastjórnun, verkefnastjóri Retreat hótelsins á Bláa lóninu.
Oddný Ingólfsdóttir – Varaformaður
Framreiðslumaður, menntuð úr Matvælaskólanum í Kópavogi, veitingastjóri á Sumac, vínþjónn, sigurvegari í Vínþjónakeppni Vínþjónasamtakanna 2025.
Finnur Gauti Vilhelmsson – Ritari
Framreiðslumaður, menntaður úr Matvælaskólanum í Kópavogi, veitingastjóri á OTO, þjálfari Norrænu Nemakeppnarinnar og Euroskills.
Peter Hansen – Gjaldkeri
Matreiðslumaður og framreiðslumaður, menntaður í Hotel og Restaurantskolen í Kaupmannahöfn, varaforseti Vínþjónasamtakana, aðstoðarsölustjóri hjá Ölgerðinni.
Trausti Víglundsson – Stjórnarmeðlimur
Framreiðslumeistari, menntaður úr Hótel- og Matvælaskóla Íslands, stjórnarmaður og heiðursiðnaðarmaður í Iðnaðarmannafélaginu í Reykjavík, einn af stofnendum Klúbbs Framreiðslumeistara, fyrrum formaður sveinsprófsnefndar og stuðningsaðili Norrænu nemakeppnarinnar.
Lind Ólafsdóttir – Varamaður
BA gráða í hótel og veitingastjórnun frá César Ritz í Sviss, vínþjónn, sölumaður og vínsérfræðingur hjá Santé.
Gyða Dröfn Víðisdóttir – Varamaður
Framreiðslumaður, menntuð úr Matvælaskólanum í Kópavogi og diplómu hafi úr Hótel og veitingastjórnun úr César Ritz, vaktstjóri á Lólu.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn5 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Keppni4 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn3 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Markaðurinn7 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Markaðurinn4 dagar síðanHefur þú smakkað svart pepperoni?












