Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Viðtal við Oddný á Sumac: Keppnisandinn krefst andlegs jafnvægis

Birting:

þann

Oddný Ingólfsdóttir

Oddný Ingólfsdóttir

Oddný Ingólfsdóttir, veitingastjóri og vínþjónn á Sumac við Laugaveg 28, hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem ein af fremstu vínþjónum landsins. Hún hefur keppt á alþjóðlegum vettvangi, smakkað sig í gegnum vínekrur Evrópu og finnst fátt skemmtilegra en að ræða vín og mat – sérstaklega með eiginmanninum sem er matreiðslumaður til margra ára.

Í þessu viðtali deilir Oddný reynslu sinni, keppnisferlinu, bestu þrúgunum og því hvernig flatkökur, kókómjólk og kampavín gætu gert síðustu máltíð lífsins að þeirri bestu.

Hefur þú farið á vínekru ef svo er hvernig var upplifunin?

Já, ég hef farið á nokkrar vínekrur á Spáni, Frakklandi og í Serbíu, upplifunin fer eftir veðrinu og víninu sem er smakkað en þetta er samt alltaf gaman, var í Jerez Xéréz Sherry í fyrra og smakkaði fullt af gotteríi og sá nóg af hríslum. Ég er síðan á leiðinni til Bodega Álvaro Palacios í Priorat eftir nokkra daga og er alveg viss um að sú upplifun muni slá met.

Hefurðu keppt í mörgum vínþjónakeppnum?

Ég hef keppt í nokkrum innlendum keppnum og síðan hef ég keppt þrisvar á Norðurlandamóti vínþjóna og einu sinni á Evrópumóti vínþjóna.

Áttu þína uppáhalds þrúgu og léttvín?

Nei í rauninni ekki, en ef ég opna flösku til þess að njóta þá eru 90% líkur á því að það verði hvítur feitur Burgundy frá einhverjum krúttlegum bæ, Barolo eða Rioja Gran Reserva, manninum mínum til mikillar gremju þar sem hann er hvítvínskona og er hrifin af ilmríkum hvítvínum frá kaldari svæðum.

Hverjir eru helstu styrkleikarnir þínir í keppnum?

Maðurinn minn fór með mér í WSET 3, hann er einnig yfirkokkur á Brút og matreiðslumaður til margra ára, svo ég hef lífsförunaut sem er fær um að hjálpa mér, þjálfa mig og tala við mig um mat og vín allan daginn, ég held að það sé minn helsti styrkleiki.

Hverjir eru helstu veikleikar þínir?

Ég á erfitt með að muna öll nöfn, bæði mannanöfn og svæðisheiti, það fer virkilega í taugarnar á mér og er eitthvað sem ég þarf að leggja mikla vinnu í.

Hvernig undirbýrð þú þig fyrir vínþjónakeppni?

Ég reyni eftir bestu getu að vera í góðu andlegu jafnvægi, ég fer á svipuðum tíma að sofa og held rútínu, síðan mæti ég snemma í keppnina til þess að þurfa ekki að flýta mér og tæmi hugan meðan ég bíð eftir því að komast inn.

Ef þú gætir breytt einu atriði í vínþjónakeppnum hvað væri það og af hverju?

Ég væri til í fjölbreyttari verkefni, mér finnst oft eins og verkefnin séu of stutt eða ekki nægilega spennandi og maður kemur oft út úr keppninni án þess að finnast maður hafa komið öllu sem maður vildi koma á framfæri til skila, en þetta er ekki alhæfing.

Fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á þessari atvinnugrein, hverju myndir þú ráðleggja þeim?

Ég held að Wine and Spirit Education Trust í London sé mjög auðveldur og góður kostur fyrir þá sem hafa áhuga á víni, námskeiðið númer tvö er ekki kostnaðarsamt né langt og það er hægt að sitja námið á sófanum heima hjá sér, það kortleggur þá kunnáttu sem nemar koma með út úr skólanum mjög vel, ég gæti ekki mælt meira með því.

Einnig er mjög mikilvægt að hafa samband við Vínþjónasamtök Íslands og gerast meðlimur, samtökin sjá um allar keppnir ásamt því að vera með Gyllta glasið sem er gullið tækifæri til þess að smakka vín og kynnast meðlimum samtakanna, það er alltaf tekið vel á móti nýliðum.

Tvær loka spurningar í anda Syndasela

Þú ert á death row, Hvort viltu sprautu eða rafmagnsstólinn?

Ég myndi taka sprautuna, algjör óþarfi að leggja of mikið á sig í lokinn.

Og hver er þín síðast 3ja rétta máltíð með vínum og afhverju? (fordrykk, eftirdrykk etc)

Ég myndi vilja flatkökur og hangikjöt með kókómjólk í forrétt, síðan væri saltkjöt og baunasúpa með mjólkurglasi í aðalrétt, í dessert væri ekkert annað en marengs rjómaterta með jarðaberjum, með henni held ég að ég vilji ekki drekka neitt, þetta matarval tel ég vera mjög góðan endi á ævinni.

En hver veit, á kantinum væri síðan kannski ein Pol Roger Blanc de Blancs vintage kampavínsflaska og ef til vill eitt stykki af Bodegas Muga, Prado Enea svona uppá gannið.

Fréttayfirlit: Oddný Ingólfsdóttir

Tolli er framreiðslumaður að mennt og Certified Sommelier frá Court of Master Sommelier, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára. Tolli hefur verið í stjórn Vínþjónasamtaka frá árinu 2001 og sá eini sem hefur gegnt öllum störfum samtakanna, nú sem ritari og gjaldkeri. Tolli starfaði lengst af í Perlunni og var stofneigandi af Sommelier Brasserie við hverfisgötu forðum daga, í dag starfar hann hjá víninnflytjanda Globus. Hægt er að hafa samband við Tolla á netfangið [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið