Markaðurinn
Rekstur í Norðurfirði á Ströndum – Einstakt tækifæri – Kaffi Norðurfjörður
Um er að ræða útleigu á rekstri veitingahússins Kaffi Norðurfjörður. Árneshreppur leitar að rekstraraðila sem getur hafið störf vorið 2024.
Samningur milli aðila er gerður til 3 ára og felur í sér starfstímabil sem er 4-6 mánuðir á ári samkv. samkomulagi.
Áhugasamir sendi umsókn á netfangið [email protected] ásamt tilboði í rekstur, hugmyndum um fyrirkomulag reksturs og upplýsingum um rekstraraðila.
Hafið samband
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2024.
Nánari upplýsingar og skoðun á eigninni veitir oddviti á [email protected] eða í 451 4001/847 2819 (kl. 13:00-17:00).
Meira um Kaffi Norðurfjörður
Kaffi Norðurfjörður er veitingahús staðsett í þorpinu sem ber sama nafn. Það var stofnað 2008 og er í rekstrarleigu sveitarfélagsins Árneshrepps á Ströndum á Vestfjörðum.
Salurinn er um 50fm með borðum og stólum. Frábært útsýni er úr kaffihúsinu til sjávar yfir höfnina og út á fjörðinn.
Eldhúsið er með öllum nauðynlegum tækjum (ísskápar, bakstursofnar, helluborð, frystikistur, uppþvottavél, bjórkranar).
Úti er pallur þar sem hægt er að hafa borð fyrir nokkra gesti.
Búast má við mikilli umferð ferðafólks á sumrin sem ferðast um og gista á svæðinu og/eða eru að fara norður á Hornstrandir með Strandferðum, frá bryggju beint fyrir framan veitingahúsið. Einnig eru talsverðir möguleikar
tengdir viðburðaskipulagi.
Hægt er að fá vörur fjóra daga á viku með flutningabíl frá Reykjavik.
Lítil íbúð með 2 svefnherbergjum er innifalin í leigu á sömu hæð í sama húsi.
-
Frétt6 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni6 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Frétt1 dagur síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn3 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt2 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum









