Íslandsmót barþjóna
RCW undanúrslit – Vídeó og myndir
Undankeppni í Íslandsmóti barþjóna og vinnustaða keppni fór fram í Gamla Bíó og öttu þar kappi 37 barþjónar og sýndu uppá hvað þeir hafa fram á að færa í gerð sætra kokteila. Keppendur fengu 15 mínútur til að gera skreytinguna á drykkinn og svo 7 mínútur til að hrista drykkinn saman og dómnefnd fer eftir er bragð, útlit, angan og heildaráhrif drykkjarins í kokkteilinum.
Vídeó frá undankeppninni:
Úrslit urðu eftirfarandi og hafa unnið sér inn rétt til þáttöku í úrslitinum á sunnudagskvöldið n.k. (raðað eftir stafrófsröð):
5 manna úrslit í RCW:
- Brooklyn bar
- Kjallarinn
- Le bistro
- Sushi samba
- Uno
5 manna úrslit Vinnustaðakeppni:
- Arnar Geir Bjarkasson, Kaffi París
- Brunó Falcó, Kjallarinn
- Guðjón Sigurður Hermannson, Kaffi París
- Hlynur Björsson, Kol restaurant
- Kári Sigurðsson, Apótek
5 manna úrslit Íslandsmóti barþjóna:
- Árni Gunnarsson, Gullöldin
- Elna María Tómasdóttir, Hilton
- Guðmundur Sigtryggsson, Hilton
- Leó Ólafsson, Kol Restaurant
- Stefán Ingi Guðmundsson, Steikhúsið
Gleðin heldur áfram og er fjöldinn allur af flottum viðburðum á helstu veitinga og skemmtistöðum landsins og í dag laugardaginn 7. febrúar er á dagskrá svokallað Master Class á Hótel Plaza frá kl 14, þar gefst gestum kostur á að drekka í sig visku og fróðleik frá nokkrum af fremstu vínsérfræðingum í heiminum, jafn erlendum sem innlendum.
Dagskrá í heild sinni er hægt að skoða með því að
smella hér.
Meðfylgjandi myndir eru frá þegar dómnefndir fóru á milli staða og dæmdu þá drykki sem í boði eru á stöðunum 30 sem taka þátt í Reykjavík Cocktail Weekend og eins í undanúrslitinum.
Dómnefndir fóru á milli staða
Undankeppnin:
Myndir: bar.is
![]()
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni5 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn6 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn5 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
-
Pistlar4 dagar síðanSnædís Xyza Mae Ocampo skrifar – Liðið, fjölskyldan og baráttan á leið til Lyon
-
Markaðurinn6 dagar síðanSnædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag




















































































