Nemendur & nemakeppni
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í matsveina- og matartæknanám
Á undanförnum árum hafa kröfur til starfsmanna í mötuneytum og eldhúsum aukist.
Vinnustaðir óska eftir starfsfólki með aukna þekkingu á matreiðslu og meðferð matvæla á öruggan hátt. Ennfremur er þörf á aukinni kunnáttu á ýmsum sérfæðum s.s. ofnæmis- og óþolsfæðis og ýmiskonar jurtafæði. Á heilbrigðisstofnunum er óskað eftir starfsfólki með enn meiri sérfæðisþekkingu.
Matsveina- og matartæknanám er hagnýtt nám fyrir þá sem starfa eða vilja starfa við matreiðslu og stjórnun í eldhúsum leik-, grunn- og framhaldsskóla, almennra vinnustaða og heilbrigðisstofnana. Námið er einnig heppilegt fyrir þá sem starfa á skipum og við ferðaþjónustu.
Námið í Hótel- og matvælaskóla MK er byggt upp sem dreifnám þar sem bóklegir áfangar eru kenndir í fjarnámi á Teams og verklegu áfangar kenndir í fjórum staðbundnum lotum á hverri önn.
Í matsveinanáminu sem tekur tvær annir er lögð áhersla á að kenna nemendum að skipuleggja og matreiða hollan og góðan mat frá grunni samkvæmt næringarráðleggingum Embætti landlæknis. Nemendur læra um næringarþarfir mismunandi hópa, að næringarútreikna matseðla og hvernig mæta má óskum vinnustaða.
Í matartæknanáminu sem tekur þrjár annir læra nemendur um skipulagningu og matreiðslu á ýmiss konar sérfæði og sérhæfa sig í matreiðslu á fæði með breyttri áferð og öðru sértæku fæði. Jafnframt er lögð áhersla á að kenna nemendum að skipuleggja og matreiða hollan og góðan mat frá grunni samkvæmt næringarráðleggingum Embætti landlæknis.
Nemendur læra um næringarþarfir mismunandi hópa, að næringarútreikna matseðla og hvernig mæta má óskum vinnustaða. Matartæknar er heilbrigðisstétt og að loknu námi sækja nemendur um starfsleyfi hjá Embætti Landlæknis. Matartæknanám er jafnframt metið inn í nám í öðrum matvælagreinum.
Einstaklingur sem hefur náð 23 ára aldri og er með 3 ára staðfesta starfsreynslu í viðkomandi fagi stendur til boða mat á raunfærni til styttingar á náminu.
Nánari uppýsingar um um námin eru á heimasíðu skólans.
Opið verður fyrir innritun í Menntagát, www.menntagatt.is dagana 1. – 31.mars 2024
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni2 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn12 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Vín, drykkir og keppni13 klukkustundir síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Markaðurinn7 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan




